Innlent

Til aðstoðar ferðamönnum

Verkefnið kynnt Fyrstu hópar björgunarsveitarmanna héldu á hálendið í gær.
Verkefnið kynnt Fyrstu hópar björgunarsveitarmanna héldu á hálendið í gær.

Alls munu fjórar björg­unarsveitir á vegum Slysavarna­félagsins Landsbjargar verða staðsettar á hálendi Íslands frá og með deginum í gær og fram til 18. ágúst í þeim tilgangi að aðstoða ferðamenn og fækka slysum.

Verkefnið var kynnt fyrir fjölmiðlum á fimmtudag en fyrstu hópar björgunarsveitarmanna lögðu þá leið sína upp á hálendið. Margvísleg verkefni bíða þeirra þar fyrir utan beina aðstoð við ferðalanga. Er ætlunin einnig að merkja vöð og ýmsar aðrar hættur sem valdið geta skaða eða tjóni í samstarfi við Vegagerðina með það að markmiði að fækka slysum á svæðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×