Fótbolti

Gerrad slæmur í bakinu

Steven Gerrad á við bakmeiðsli að stríða
Steven Gerrad á við bakmeiðsli að stríða MYND/AP

Steven Gerrard segir að það séu helmingslíkur á að hann verði orðinn fullgóður af bakmeiðslum fyrir leikinn gegn Paragvæ 10. júní.

Gerrard sem að hefur kennt sér meins í baki æfði ekki á miðvikudag vegna meiðslanna en hann mætti þó á æfinguna í morgun (fimmtudag) ásamt Wayne Rooney.

Gerrard segir að ef batinn verði jafn góður á næstu dögum eins og hann var seinasta sólahringinn þá muni hann verða klár, en annars ekki.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×