Innlent

Rúta valt á Bláfellshálsi

Hópferðabíll með 16 erlendum ferðamönnum valt á Bláfellshálsi á Kjalvegi í gær. Tveir sjúkrabílar voru sendir á staðinn og var ökumaður bílsins fluttur á Landspítalann til aðhlynningar. Hann var þó ekki alvarlega slasaður og sakaði aðra farþega ekki.

Ferðalangarnir voru á leiðinni í snjósleðaferð á jökul en að sögn lögreglu var vegurinn þar sem bíllinn valt í mjög slæmu ástandi, sannkallað forarsvað með djúpum hjólförum.

Hálendiskort Vegagerðarinnar segir að öll umferð um þennan veg sé bönnnuð vegna aurbleytu. -




Fleiri fréttir

Sjá meira


×