Sigur kemur með starfhæfri stjórn 31. janúar 2005 00:01
Írakar sýndu uppreisnar- og hryðjuverkamönnum í tvo heimana með því að streyma á kjörstaði þrátt fyrir hótanir og árásir. Kosningarnar í gær þykja marka tímamót en sigurinn er þó ekki sagður í hendi fyrr en starfhæfri stjórn hefur verið komið á laggirnar. Yfirkjörstjórn Íraks segir talningu ganga vel en að tíu dagar séu þangað til endanleg úrslit liggi fyrir. Þessi langi tími er meðal annars ætlaður til þess að kanna og bregðast við kvörtunum sem kunna að berast. Alls er talið að um átta milljónir manna hafi greitt atkvæði í kosningunum í gær, en það eru um sextíu prósent þeirra sem voru á kjörskrá og mun betri kjörsókn en búist var við. Í dag segja fréttaritarar í Írak frá því að fólk sýni víða með stolti blekbláan vísifingur, merki þess að almenningur hafi ekki látið hryðjuverkamenn hræða sig frá kjörstað. Í gær óttuðust margir að blái fingurinn, sem er merking sem þeir sem greitt hafa atkvæði fá, væri hálfgerð dauðamerking. Þó að hryðjuverkamenn hafi fellt þrjátíu og fimm og gert þónokkrar árásir var ástandið ekki nándar nærri eins slæmt og óttast var. „Heimurinn heyrir rödd frelsis óma frá Miðausturlöndum,“ sagði Bush Bandaríkjaforseti í gær og lýsti kosningarnar afgerandi sigur. Sérfræðingar vara þó við því að kosningarnar verði sagðar sigur því að sigurinn geti einungis falist í því að koma á starfhæfri ríkisstjórn í kjölfarið sem veltur ekki síst á því hvernig súnnítar líta á málið. Víða á svæðum þeirra var kosningaþátttaka dræm en ekki er enn ljóst hversu hátt hlutfall þeirra nýtti sér atkvæðisrétt sinn. Ljóst er að sjítar hafa mjög sterka stöðu að loknum kosningunum og það gæti nægt til að hleypa illu blóði í súnníta sem voru valdastéttin á tíma Saddams Husseins en eru nú valdalítill minnihlutahópur. Þó að uppreisnar- og hryðjuverkamenn hafi ekki valdið þeim blóðsúthellingum í gær sem óttast var segja bæði talsmenn bandarískra og breskra yfirvalda ekki ólíklegt að andspyrnan muni harðna og árásum enn fjölga á næstu vikum og mánuðum, þegar Abu Musab al-Zarqawi og menn hans refsa þeim sem kusu og halda áfram herferð gegn hersetuliðinu. Sem stendur eru gerðar um sjötíu árásir á dag en talið er að kjarni hryðjuverkahópanna samastandi af um 40 þúsund mönnum sem njóti aðstoðar 160 þúsunda til viðbótar. Þó að talið sé að 32 þúsund uppreisnar- og hryðjuverkamenn hafi verið felldir í Írak frá því að Saddam Hussein var komið frá völdum virðist sem enn sé nóg eftir.
Erlent Fréttir Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Fleiri fréttir Einn látinn eftir að flugvél endaði á húsþaki Hjálpaði mágkonu sinni að flýja heimilið: „Þetta reddast!“ Eldarnir þeir skæðustu sem hafi nokkurn tímann herjað á landið Ekkert lát á árásum Bandaríkjanna og Íran Minnst 15 látnir í árásum Rússa Vilja refsiaðgerðir til að sporna gegn „vistmorði“ Kínverja Vopnaframleiðendur reyna að koma til móts við Evrópu Eldar brenna á Spáni og í Frakklandi Vilja tryggja að hægt sé að óvirkja gervigreindina Viðurkenndu mistök og drógu stefnur gegn blaðamönnum til baka Southport-morðinginn fluttur á geðdeild Nýir tollar lagðir á yfir 80 ríki með vísan til vinnuþrælkunar Óttast að hin leiðin lokist með miklum afleiðingum Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael Slapp naumlega frá hlébarða í vínbúð Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Réttarhöld yfir Maduro hefjast í júní á næsta ári Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming „Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu Gervigreindarlíkan framkvæmdi netárás óumbeðið Rústa brú eða orkuveri fyrir hverja árás á Hormússundi Fyrirsætuveiðari Epsteins fannst látinn Vill að Infantino stýri Sameinuðu þjóðunum Rýnt í deilurnar: Hver er nýr yfirherforingi Úkraínu? Vill billjónir vegna stríðsins og reifst við þingmenn Frakkar lögleiða samfélagsmiðlabann barna Eigandi Michelin-staðar ákærður fyrir notkun maura í mat Undirrita samkomulag sem opnar á úranauðgun Sáda Utanríkisráðherrann lýsir árásunum sem urðu Khamenei að bana Sjá meira