Erlent

Tveir menn dæmdir til dauða í Afganistan

MYND/AP

Tveir menn voru dæmdir til dauða í Kabúl, höfuðborg Afganistans í dagfyrir að ræna ítölska hjálparstarfsmanninum Clementinu Cantoni, halda henni í gíslingu í þrjár vikur, og myrða son kaupsýslumanns frá Afganistan. Búist er við að mennirnir áfrýi dómnum.Ítalskir fjölmiðlar segja að þegar móðir eins mannræningjanna var leyst úr varðhaldi vegna rannsóknar á mannráninu þá hafi Cantoni fengið frelsi. Embættismenn í innanríkisráðuneyti Afganistans segja hins vegar að þeir hafi ekki gert neitt samkomulag við mannræningjana um skipti á föngum.Cantoni, sem er 32 ára, sagði mannræningjana hafa ekki farið illa með sig. Cantoni vann á vegum alþjóðlegu hjálparsamtakanna CARE og fólst starf hennar m.a. í aðstoð við ekkjur og fjölskyldur þeirra í Afganistan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×