Barnahús opnað í Svíþjóð 29. september 2005 00:01
Fyrsta Barnahúsið í Svíþjóð verður opnað í Linköping á morgun með formlegri athöfn að viðstaddri Silvíu drottningu. Svíar hafa sótt fyrirmyndina til Íslands og að því er fram kemur í tilkynningu frá Barnahúsi hefur Braga Guðbrandssyni, forstjóra Barnaverndarstofu, verið boðið að vera viðstaddur opnunarathöfina ásamt sendiherra Íslands í Stokkhólmi. Þá er gert ráð fyrir því að Bragi haldi ræðu við athöfnina og taki þátti í fréttamannafundi af þessu tilefni. Íslenska Barnahúsið hefur vakið mikla athygli á erlendum vettvangi, einkum á Norðurlöndunum. Í Linköping hefur verið miðstöð Svía í rannsókn og meðferð kynferðisbrota á börnum, svonefnd Bub-Elefanten. Þar hefur lengi verið mikill áhugi á að hrinda í framkvæmd Barnahúsi að íslenskri fyrirmynd og er það nú orðið að veruleika, ekki síst fyrir frumkvæði Silvíu drottningar sem heimsótti íslenska Barnahúsið í opinberri heimsókn sænsku kongungshjónanna hingað til lands fyrir ári. Sú heimsókn leiddi til þess að drottningin beitti sér sérstaklega fyrir stofnun hússins í Svíþjóð í kjölfarið, en drottningin er stofnandi World Childhood Foundation, sem hefur að markmiði að bæta réttindi og aðstæður barna í heiminum. Fékk drottningin því framgegnt að veitt var sérstöku fjármagni úr sjóðnum til þess að Barnahús gæti orðið að raunveruleika í Svíþjóð sem fyrst. Uppi eru áform um að setja á laggirnar fleiri Barnahús í Svíþjóð. Þá hefur norska dómsmálaráðuneytið sett á laggirnar vinnuhóp sem ætlað er að skoða það fyrirkomulag sem Barnahúsið byggir á við rannsókn og meðferð kynferðisbrota gegn börnum og hefur verið leitað liðsinnis Barnaverndarstofu í þeirri vinnu.
Erlent Fréttir Innlent Mest lesið Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Anna Valdimarsdóttir er látin Innlent Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Innlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Innlent Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Erlent „Þetta situr náttúrulega í manni“ Innlent Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Innlent Fleiri fréttir Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Sjá meira