Erlent

Sharon og Abbas funda 2. október

Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, greindi frá því í ræðu í New York í dag að hann myndi hittast Mahmoud Abbas, leiðtoga Palestínumanna, 2. október næstkomandi. Þar sagðist Sharon ætla hvetja Abbas til að standa við þær skuldbindingar sem kveðið væri á um í hinum svokallaða vegvísi til friðar, ellegar myndi ekkert þokast í friðarátt og ekki hylla undir sjálfstætt ríki Palestínu. Meðal þess sem bíður Abbas er að afvopna herskáar fylkingar eins og Hamas-samtökin, en þúsundir Hamas-liða buðu Abbas birginn í dag og söfnuðust saman á götum úti í Gasaborg með vopn þrátt fyrir bann við slíku. Þar horfir Abbas fram á erfitt verk enda hefur stuðningur við Hamas-samtökin aukist eftir að þau ákváðu að bjóða fram í þingkosningum í Palestínu á næsta ári.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×