Tveggja frambjóðenda barátta 16. september 2005 00:01
Tuttugu og fimm flokkar bjóða fram í þingkosningunum í Þýskalandi, allt frá flokki bókstafstrúaðra kristinna til stjórnleysingjaflokksins. En baráttan stendur í raun á milli tveggja flokka - eða jafnvel bara tveggja frambjóðenda. Af öllum flokkunum eru það fimm - kannski sex - flokkar sem skipta einhverju máli og þar af eru það tveir flokkar sem eru þungavigtin í þýskum stjórnmála. Kristilegir demókratar, flokkur Helmuths Kohls og Angelu Merkel, og svo Jafnaðarmannaflokkur Gerhards Schröders, núverandi kanslara. Baráttan stendur reyndar einkum á milli þessara flokka og í forvígi eru formennirnir, Merkel og Schröder. Eftir sjö ár á kanslarastóli vita Þjóðverjar alveg hver Gerhard Schröder er. Jafnaðarmaður með einhverjum formerkjum, maður með góð tengsl við viðskiptalífið þrátt fyrir það og kanslari sem hefur lagt áherslu á að byggja upp ímynd sem sterkur leiðtogi á alþjóðavettvangi. Spurningin er miklu fremur: Hver er hún, Angela Merkel? David Eicher ímyndarsérfræðingur segir Merkel austurþýska sem sé ekki endilega jákvætt í augum hinna mörgu vesturþýsku kjósenda. Því reyni kristilegir demókratar að skapa samþýska ímynd af Merkel með áherslu á efnahagslífið. Eicher segir að Merkel hafi breytt ímynd sinni býsna oft undanfarið, en á hálfu ári hafi hún þrisvar skipt um hárgreiðslu og fólk taki eftir því. Hún sé að berjast fyrir því að finna réttu ímyndina en með þessu sýni hún einnig kænsku og glæsibrag sem kona sem hafi tekist að stíga í hin stóru fótspor Helmuths Kohls.
Erlent Fréttir Mest lesið Nálgist neyðarástand Innlent Lentu aftur í óförum Innlent „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ Innlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Innlent Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Erlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Innlent Lést í stormi í Færeyjum Erlent Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent Fleiri fréttir Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Sjá meira