Sport

Fjör í 1.deildinni

Það var blóðug barátta á Akureyri í gær þegar erkifjendurnir í Þór og KA mættust. Hart var tekist á eins og venjulega og fengu tveir leikmenn Þórs að líta rauða spjaldið. Það nýttu KA-menn sér til fullnustu og þegar upp var staðið höfðu þeir niðurlægt Þórsarana, 6-1. KA-menn komust yfir strax á 12. mínútu með marki Húsvíkingsins Pálma Rafns Pálmasonar. Vendipunktur leiksins kom síðan á 37. mínútu þegar Egill Már Markússon dómari gaf Lárusi Orra Sigurðssyni beint rautt spjald fyrir háskalega tæklingu. Lárus Orri vissi upp á sig sökina og yfirgaf svæðið hávaðalaust. Þannig stóðu leikar í hálfleik en Þórsarar jöfnuðu óvænt í upphafi þess síðari úr vítaspyrnu. KA-menn voru fljótir að svara með öðru marki, einnig úr víti, og þegar Þórsarar misstu annan mann af velli var allur vindur úr þeim. KA-menn gengu á lagið og bættu við fjórum mörkum áður en Egill Már flautaði leikinn af. Í Víkinni var söguleg stund þegar reykvísku Víkingarnir tóku á móti Víkingunum frá Ólafsvík. Sá leikur var aldrei spennandi enda eru Reykjavíkur-Víkingar með mikið sterkara lið og þeir voru ekki í vandræðum með nafna sína frá Ólafsvík. Lokatölur 7-0 sem var síst of stór sigur. Nýliðar KS frá Siglufirði komu verulega á óvart á Kópavogsvelli með því að leggja HK að velli, 0-2. Sigur Siglfirðinga var sanngjarn og sannfærandi enda héldu þeir algjörlega aftur af sóknarleik heimamanna sem áttu eitt verulegt færi í leiknum. Það er ljóst að KS er með mun sterkara lið en menn töldu í fyrstu og verða þeir sýnd veiði en ekki gefin. HK heldur aftur á móti áfram að valda vonbrigðum en til mikils var ætlast af liðinu fyrir mótið. Völsungur frá Húsavík situr sem fastast á botni deildarinnar án stiga eftir 1-0 tap gegn Haukum. Það sem meira er þá hefur þeim ekki enn tekist að skora mark sem er ákaflega dapur árangur hjá Zorani Ljubicic og lærisveinum hans.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×