Innlent

Fer ekki út vegna flugfélagsreglna

Gylfi Baldursson talmeinafræðingur fékk ekki að kaupa ferð til Króatíu með Heimsferðum. Flugfélagið sem ferðaskrifstofan skiptir við neitaði að útvega honum súrefniskút meðan á ferðinni stæði. Þá var honum meinað að koma með sinn eigin kút. Gylfi Baldursson hefur ferðast víða um lönd. Þrátt fyrir að hann sé bundinn við hjólastól og veikur í lungunum hefur það ekki hindrað ferðalög hans fyrr en núna. Gylfi var búin að panta ferð með Heimsferðum þegar skyndilega kom babb í bátinn. Gylfi segir að skömmu eftir að hann hafi verið búinn að ganga frá pöntuninni hjá Heimsferðum hafi verið hingt í hann og honum tjáð að flugélagið sem Heimsferðir ættu viðskipti við neitaði ekki einungis að veita súrefnisþjónustu um borð heldur tæki það ekki í mál að hann kæmi með eigin kút. Gylfi segist sáttur við að borga sérstaklega fyrir þessa þjónustu sé þess krafist. Það hafi hins vegar ekki verið í boði. Guðbjörg Sandholt, sölustjóri Heimsferða, segir að Futura-flugfélagið sem Heimferðir skipta við setji sínar eigin reglur og sé aðeins með sitt neyðarsúrefni um borð og því miður samþykki það ekki þá farþega sem þurfi að vera með sinn eigin súrefniskút. Aðspurð hvernig þetta horfi við ferðaskrifstofunni segir Guðbjörg að henni þyki þetta mjög leiðinilegt en hún geti ekkert gert til að breyta þessu. Þetta séu reglur flugfélagsins Gylfi segist hafa rætt við menn sem telji að brotið hafi verið á mannréttindum hans. Hann hafi skrifað ferðaskrifstofunni og beðið um skýringar en ekki fengið svar. Hann telji að Heimsferðir beri þarna ábyrgð með því að skipta við þetta flugfélag. Fjölmargir þurfi á þessari þjónustu að halda til að geta ferðast. Hann segist ekki hafa algjöra vissu um að brotið hafi verið á mannréttindum hans lagalega en persónulega finnist honum það vera svo.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×