Atvinnuleysi minnkar 19. apríl 2005 00:01
Atvinnuleysi sem mælist 2,6% þýðir að um 3.800 manns að meðaltali hafi verið án vinnu í marsmánuði. Það er umtalsverð lækkun frá sama tíma á síðasta ári, þegar atvinnuleysi mældist 3,5 prósent. Þessarar lækkunar atvinnuleysis gætir bæði á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni nema á Austurlandi, þar sem atvinnuleysi stóð í stað. Atvinnuleysi hefur lækkað jafnt og þétt frá áramótum. Í janúar mældist það þrjú prósent, 2,8 í febrúar og nú 2,6 prósent. Þegar búið er að taka tillit til árstíðabundinna þátta mældist atvinnuleysi 2,2 prósent af mannafla og þarf að fara aftur til ársins 2002 til að finna jafn lítið atvinnuleysi, eins og kemur fram á vefsíðu Alþýðusambands Íslands, asi.is.. Alls töldust 1.465 einstaklingar langtímaatvinnulausir í mars og hafði þeim fjölgað frá því í febrúar en þá voru þeir 1.411.
Atvinna Mest lesið Stjörnum prýtt svitapartý Lífið „Brúðkaup var ekki á bingóspjaldinu fyrir sumarfríið“ Lífið Hvað veistu um… bæjarhátíðir? Lífið Orðin háð því að vera „enginn“ Lífið Fullt út úr dyrum í prjónapartýi ársins Lífið Siggi Gunnars hættur sem tónlistarstjóri Rásar 2 Lífið Laufey fagnaði Laufeyjardeginum á Íslandi Lífið Lag sem enginn söng á toppnum í Ástralíu Tónlist Harington tekur við af uppteknum Hoult Bíó og sjónvarp Stjörnulífið: Afmælið endaði með ælu Lífið Fleiri fréttir Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira