Tíska og hönnun

Rosina ný hátískuborg?

Tískuhöfuðborgir heims eru: París, Mílanó, New York - og Rosina? Það er fátækrahverfi rétt hjá Rio de Janeiro í Brasilíu og þangað leita tískuhönnuðir nú innblásturs.

Rosina er fátækrahverfi þar sem fólk býr í hreysum og lögreglan þorir ekki að ferðast um. Þeir sem ráða þar eru þeir sem ráða fíkniefnaheiminum hverju sinni. En hópur kvenna lætur það ekkert á sig fá heldur hefur skapað sér störf og orðspor fyrir hönnun, hönnum sem vakið hefur athygli evrópskra tískuhönnuða. Konurnar hekla og það er margra daga verk að ljúka því sem síðar er selt sem hátískuvara í stórborgum heimsins. Valderes Linhares Lopez hönnuður segist agndofa við að horfa á handverkið, hún sé svo stolt og svífi á skýi.

Þeir sem kynnast vilja hönnuðunum verða að þræða mjótt einstigi en það er eina leiðin inn í hverfið. Til þess að komast úr fátæktargildrunni reyna konurnar að hafa sem mest upp úr vinnunni og kenna nú evrópskum hönnuðum handverkið. Þegar fyrstu hönnuðurnir komu til Rosna leyst þeim ekkert á blikuna. Benoit Missolin, franskur hönnuður, segir að á götunum líði mönnum ýmist eins og allt sé í lagi eða finni fyrir mikilli spennu og séu þá hræddir við allt

Teresa Leal, stofnandi Coopa-Roca, segir að í Rosina séu búnir séu til afar fallegir og markaðsvænir hlutir og jafnframt sé unnið í einu af mestu fátækrahverfum Suður-Ameríku.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×