Sport

Henry trúir á sína menn

Markahrókurinn Thierry Henry hjá Arsenal segir að lið sitt þurfi að sanna ástríðu sína til að eiga möguleika á að komast áfram í Meistaradeildinni. Henry viðurkennir að lið sitt eigi erfitt verkefni fyrir höndum, enda tapaði liðið fyrri leiknum 3-1 í Munchen og því þarf liðið að sigra 2-0 til að komast áfram í keppninni.  Henry telur möguleika Arsenal góða og vísar máli sínu til stuðnings á ótrúleg úrslit sem urðu í keppninni í fyrra. "AC Milan fór með 4-1 forskot í síðari leik sinn gegn Deportivo í fyrra og duttu út.  Það sama má segja um Real Madrid, sem duttu út með 4-2 forskot eftir fyrri leikinn gegn Mónakó.  Þessi nýlegu dæmi sýna okkur að allt er hægt í þessu", sagði Frakkinn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×