Menning

Fyrir þá sem eiga langt í vinnuna

Skrifstofuhótel er nýjung sem hentar vel fyrir fólk sem býr fyrir austan fjall og stundar störf á höfuðborgarsvæðinu en getur þó verið tvo til þrjá daga í viku fjarri höfuðvinnustaðnum. Á Skrifstofuhótelinu er fyrsta flokks aðstaða með öflugu háhraðasambandi og hvetjandi vinnuumhverfi. Hótelið gefur fólki kost á að vera í heimabyggð og því dregur það úr umferð, mengun og slysahættu. Skrifstofuhótelið er samvinnuverkefni Sunnan3 – rafræns samfélags, Verkfræðistofu Suðurlands og Tölvu- og radíóþjónustu Suðurlands. Það er til húsa á annarri hæð í Kjarnanum á Selfossi þar sem áður voru skrifstofur KÁ.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×