Þjóðin syrgir látinn leiðtoga 15. febrúar 2005 00:01
Þjóðarsorg ríkir í Líbanon eftir að fyrrverandi forsætisráðherra landsins lét lífið í sprengjuárás á mánudaginn við þrettánda mann. Enn er óvíst hverjir standi að baki tilræðinu en margir hallast að því að Sýrlendingar hafi haft hönd í bagga. Óttast er að tilræðið leiði af sér ólgu í landinu. Þriggja daga þjóðarsorg hefur verið lýst yfir í Líbanon eftir morðið á Rafik Hariri, fyrrverandi forsætisráðherra landsins. Skólar, bankar og verslanir voru lokaðir og fáir voru á ferli í höfuðborginni. Auk Hariri týndu þrettán manns lífi í árásinni og rúmlega 120 særðust. Her landsins er í viðbragðsstöðu. Áður óþekkt samtökt lýstu í fyrradag morðunum á hendur sér í myndbandsupptöku sem sýnd var á Al-Jazeera sjónvarpsstöðinni en yfirlýsingunni er þó tekið með varúð. Margir álíta að sýrlensk stjórnvöld beri ábyrgð á tilræðinu, meðal annars Michel Aoun, fyrrverandi hershöfðingi sem stóð fyrir uppreisn í landinu snemma á tíunda áratugnum en hann er nú í útlegð í Frakklandi. Bashir Assad, forseti Sýrlands, hefur hins vegar fordæmt árásina, rétt eins og stjórnmálamenn víða um heim, þar á meðal Bush Bandaríkjaforseti. Hariri var sextíu ára að aldri og stórefnaður. Hann var forsætisráðherra Líbanon í alls tíu ár eftir að borgarastyrjöldinni þar lauk fyrir fimmtán árum. Hariri sagði hins vegar af sér embætti í fyrrahaust eftir deilur um afskipti Sýrlendinga af stjórn landsins. Spenna hefur farið vaxandi í Líbanon undanfarna mánuði eftir að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti ályktun þar sem skorað var á sýrlensk stjórnvöld að hætta afskiptum af líbönskum innanríkismálum. Sýrlendingar halda úti 15.000 manna herliði er í landinu og hafa mikil ítök í stjórnmálalífinu. Einhverjir stjórnmálaskýrendur telja að tilræðismennirnir vilji spilla friðnum fyrir botni Miðjarðarhafs eftir að Ísraelar og Palestínumenn sömdu um vopnahlé en sýrlensk stjórnvöld og ýmis samtök sem starfa í skjóli þeirra, til dæmis Hizbollah, eru sögð lítt hrifin af þróun mála þar.
Erlent Fréttir Mest lesið Kona réðst á pizzusendil sem vildi fá símann sinn aftur Innlent Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Innlent Hvorki Pútín né Trump ætla á fund Selenskí Erlent Telur líkur á að starfslok Úlfars tengist útlendingapólitík Innlent Sváfu úti á palli með barnið en fá húsið ekki bætt Innlent Flugleiðir á barmi gjaldþrots gátu ekki haldið Cargolux Innlent Leitar stolins bíls: „Eins og hann sé bara á rúntinum“ Innlent Loftárásir héldu áfram og segja enn harðari árásir framundan Erlent Enn einn skjálftinn austan við Grímsey Innlent „Dýrlegt veður eins langt og séð verður“ Veður Fleiri fréttir Loftárásir héldu áfram og segja enn harðari árásir framundan Hvorki Pútín né Trump ætla á fund Selenskí „Fátækasti forseti heims“ látinn Einn lifði rúmlega hundrað metra fall af og gekk eftir hjálp Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Tugir sagðir liggja í valnum eftir loftárásir Fingrafar leiddi til handtöku hálfri öld eftir morð Lykilvitni gegn Diddy: „Þetta voru hans draumórar“ Trump hitti Sýrlandsforseta í Sádi-Arabíu Menendez bræður geta nú sótt um reynslulausn Háttsettur sænskur diplómati handtekinn fyrir njósnir Tveir frambjóðendur myrtir á nokkrum dögum Hóta að standa í vegi „fallegs“ frumvarps Mætir ræningjunum í fyrsta sinn Segja ekki hvort Pútín ætli að hitta Selenskí Sakfelldur fyrir að hafa beitt konur kynferðisofbeldi Staðfesta ábyrgð Rússa á því að malasíska þotan var skotin niður Trump með verri ímynd á heimsvísu en Xi og Pútín Sláandi tölur um aflýst flug til Nuuk-flugvallar Málverk af Grænlandi undir stjórn Trumps vekur athygli „Táknrænt sterk“ forysta Grænlands hefst í dag Bandaríkjaforseti vill þiggja lúxusþotu frá Katar að „gjöf“ Sakar Rússa um að hafa brennt stærstu verslunarmiðstöð Póllands Leysa upp samtökin og leggja niður vopn Vopnahlé hélt í nótt og viðræðum fram haldið Láta bandarískan gísl lausan Mun bíða Pútíns í Tyrklandi á fimmtudag Vilja leggja réttarríkið til hliðar „Mikilvæg skref“ en allt velti á því hvort Pútín sé í stuði fyrir frið Vopnahléið heldur en vígahugur ríkir enn Sjá meira