Skilur ákvörðun Lykketofts 9. febrúar 2005 00:01 MYND/Reuters
Formaður danska Jafnaðarmannaflokksins, Mogens Lykketoft, ætlar að hætta í kjölfar slæmrar útkomu flokksins í þingkosningunum í gær. Forsætisráðherrann hrósar sigri og segist skilja ákvörðun höfuðandstæðings síns. Ríkisstjórn Dana bætir við sig einu þingsæti. Stjórn frjálslynda hægriflokksins Venstre og Íhaldsflokksins með stuðningi danska Íhaldsflokksins heldur velli með 95 þingsæti á móti 80 sætum stjórnarandstöðunnar. Stjórnin bætir við sig einu þingsæti þrátt fyrir að Venstra missi fjögur sæti. Hinir tveir flokkarnir bæta nefnilega við sig fimm sætum, íhaldsmenn þremur og Danski þjóðaflokkurinn tveimur. Einhver upptokkun gæti hins vegar orðið á ráðuneytum þar sem Íhaldsmenn gætu gert kröfu um aukin völd í stjórnarsamstarfinu samfara auknu fylgi. Niðursveiflu Venstre skýrði atvinnumálaráðherra Danmerkur í viðtali við danska ríkissjónvarpið í morgun þannig að það væri fórnarkostnaður þess að vera við stjórn og bera ábyrgð á misvinsælum ákvörðunum. Jafnarmenn biðu hins vegar ósigur eins og spáð hafði verið og missti flokkurinn fimm þingsæti sem er versta útkoma hans í þrjátíu ár. Mogens Lykketoft, formaður flokksins, sagði í ræðu við stuðningsmenn sína í gærkvöldi að hann hefði gert sitt besta og tæki ábyrgð á ósigrinum og því ætti annar maður að leiða flokkinn í næstu kosningum. Danska ríkisútvarpið hefur heimildir fyrir því að annar formaður, formaður Vinstri sósíalista, Holger K. Nielsen, hyggist líka segja af sér vegna slæmrar niðurstöðu þess flokks í kosningunum. Sigurvegari kosninganna er Marianne Jelved sem er sextug kennslukona sem gerði handtösku að tákni í kosningabaráttunni og fer með hana upp á arminn hvert sem hún fer. Flokkur hennar, miðjuflokkurinn Radikal Venstre, bætti við sig sjö þingsætum. Hún hefur hins vegar ekki áhuga á að vera í stjórn með Anders Fogh Rasmussen forsætisráðherra. Rasmussen er fyrsti forsætisráðherra úr röðum Venstre sem er endurkjörinn í Danmörku. Í ræðu til stuðningsmanna sinna í gærkvöldi sagði hann Venstre hefði náð því að vera áfram stærsti stjórnmálaflokkur Danmerkur. Hann þakkaði svo konunni sinni fyrir stuðninginn undanfarin 20 ár og sömuleiðis Mogens Lykketoft fyrir erfiða en drengilega kosningabaráttu. Hann tók svo til orða að hann skildi ákvörðun Lykketofts að hætta sem formaður Jafnaðarmannaflokksins. Kjörsók var tæp 85 prósent, tæpum tveimur prósentum minni en í síðustu þingkosningum. Formleg úrslit verða tilkynnt í kvöld þó að þau liggi fyrir, en Anders Fogh Rasmussen gekk á fund Danadrottningar í morgun til að tilkynna henni óbreytta ríkisstjórn. Kosningabaráttan var litlaus og einkenndist af því hver gæti yfirboðið hvern með kosningaloforðum, sagði fréttamaður arabísku sjónvarpsstöðvarinnar Al- Jazeera í þættinum God morgen Danmark í morgun. Hann segir að hugsjónir og hugmyndafræði hafi vantað í baráttuna, en hann var einn af tæplega 140 erlendum blaðamönnum sem fylgdust með þingkosningunum.
Erlent Fréttir Mest lesið Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Vara við snörpum hviðum Veður Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Innlent Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Erlent Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður Innlent Fleiri fréttir Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Fjarhægrimenn gætu fundið bragðið af völdum í fyrsta sinn Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Ítrekar kröfu á Falklandseyjar: Ekki duttlungar heldur „lífsnauðsyn“ Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Árás á höfuðstöðvar Öryggisstofnunar Úkraínu Kviðdómendur fá enn eitt tækifæri Ákærður fyrir að brjóta á börnum Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Grænlendingar fá fría læknisþjónustu í Danmörku Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Óttast að yfir áttatíu hafi farist Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Sjá meira