Koma sér fyrir á hættulegu svæði 12. janúar 2005 00:01
Fórnarlömb flóðbylgjunnar á Srí Lanka eru nú að snúa aftur til síns heima, stjórnvöldum til mikils ama. Fólkið kemur sér á ný fyrir á svæði sem talið er stórhættulegt. Ofgnótt er af sumum neyðarvarningi en annan sárvantar. Chandrika Kumaratunga, forseti Srí Lanka, hefur notað hamfarirnar í pólitískum tilgangi. Hún bauð til að mynda Tamíl-tígrum eina þyrlu fulla af hjálpargögnum daglega, eða um tvö tonn, fyrir alla á svæðum þeirra, en þau ná yfir helming landsins. Þegar því var hafnað gátu menn sagt að Tamílar hefðu hafnað allri hjálp sem boðin var. Tamílar segja þetta stríðsyfirlýsingu. Kumaratunga sýnir þó friðarvilja því í morgun var greint frá því að hún hygðist taka að sér unga Tamílastúlku sem missti foreldra sína í hamförunum. Alþjóðasamfélagið virðist hafa tekið svo vel við sér í kjölfar hamfaranna að ofgnótt er af ýmsum neyðarvarningi, plastdúkum og ýmsu sem einfalt var flytja til landsins í flýti. Nú er svo komið að stjórnvöld biðjast undan slíkum sendingum en sárvantar ýmsan annan varning til aðstoða fórnarlömb hamfaranna. Lyf og hreinlætisvörur eru þar á meðal en þau þarf til að koma í veg fyrir að sjúkdómar breiðist út. Við suðurströnd Srí Lanka er helst að fólk snúi til síns heima á ný og því fækki þeim ört sem dvelja í neyðarskýlum og flóttamannabúðum þar. Margir vilja tryggja að þeir missi ekki gott svæði við ströndina en stjórnvöld segjast nú ætla framfylgja reglu sem bannar alla búsetu innan við 300 metra frá ströndu. Fiskimenn, sem eru fjölmargir, búa flestir í fjörunni en stjórnvöld telja það ekki óhætt. Í ljós þess að fljóðbylgjan náði víðast hvar á milli 300 og 500 metra upp á land er ljóst hvers vegna.
Asía - hamfarir Erlent Fréttir Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Segir í tísku að setja „alþjóðasamfélagið“ ofar eigin þjóð Erlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Innlent Fleiri fréttir Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja „alþjóðasamfélagið“ ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Sjá meira