Vill auka vægi ESB innan NATO 14. febrúar 2005 00:01
Hætta er á að Atlantshafsbandalagið verði úrelt verði ekki brugðist við, að mati Gerhards Schröders, kanslara Þýskalands. Hann kynnti um helgina hugmyndir sem auka vægi Evrópusambandsins og ýta öðrum þjóðum, þar á meðal Íslandi, út á jaðarinn. Bandaríkjamenn og Evrópuþjóðir hafa ekki verið sammála um framtíðarstefnu bandalagsins um nokkurra ára skeið og ljóst er að Schröder taldi hugmyndir sínar til þess fallnar að bæta úr því. Á öryggisráðstefnu í München um helgina voru kynntar hugmyndir hans sem gera meðal annars ráð fyrir því að nýjum vettvangi til að samhæfa stefnu og aðgerðir stjórnvalda í Washington og Evrópusambandsins verði komið á fót og að Evrópusambandið hljóti meira vægi í samstarfinu. Verði þessum hugmyndum hrint í framkvæmd eru það slæm tíðindi fyrir þær bandalagsþjóðir sem standa utan Evrópusambandsins: Noreg, Kanada, Tyrkland og Ísland, að mati Jans Petersens, utanríkisráðherra Noregs. Þær þjóðir væru þar með komnar út á áhrifalítinn jaðar og hefðu lítið að segja. Óhætt er að segja að hugmyndir Schröders hafi bæði vakið mikla athygli og hörð viðbrögð. Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, vísaði þeim á bug og sagði unnið að því að endurnýja ferli innan Atlantshafsbandalangsins en að Bandaríkjamenn hefðu enn fremur engan áhuga á að binda sig við bandalagið heldur starfa með þeim sem hentaði hverju sinni. Þýskir stjórnmálamenn og utanríkismálastjórar Evrópusambandsins vísa hugmyndunum á bug á öðrum forsendum: Schröder tali eins og NATO sé í kreppu en því sé alls ekki fyrir að fara. Allt sé í himnalagi og engin ástæða til að láta eins og samstarf ríkjanna á Atlantshafsásnum gangi þar ekki vel og eðlilega fyrir sig.
Erlent Fréttir Mest lesið Kona réðst á pizzasendil sem vildi fá símann sinn aftur Innlent Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Innlent Hvorki Pútín né Trump ætla á fund Selenskí Erlent Telur líkur á að starfslok Úlfars tengist útlendingapólitík Innlent Sváfu úti á palli með barnið en fá húsið ekki bætt Innlent Flugleiðir á barmi gjaldþrots gátu ekki haldið Cargolux Innlent Leitar stolins bíls: „Eins og hann sé bara á rúntinum“ Innlent „Dýrlegt veður eins langt og séð verður“ Veður Loftárásir héldu áfram og segja enn harðari árásir framundan Erlent Enn einn skjálftinn austan við Grímsey Innlent Fleiri fréttir Loftárásir héldu áfram og segja enn harðari árásir framundan Hvorki Pútín né Trump ætla á fund Selenskí „Fátækasti forseti heims“ látinn Einn lifði rúmlega hundrað metra fall af og gekk eftir hjálp Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Tugir sagðir liggja í valnum eftir loftárásir Fingrafar leiddi til handtöku hálfri öld eftir morð Lykilvitni gegn Diddy: „Þetta voru hans draumórar“ Trump hitti Sýrlandsforseta í Sádi-Arabíu Menendez bræður geta nú sótt um reynslulausn Háttsettur sænskur diplómati handtekinn fyrir njósnir Tveir frambjóðendur myrtir á nokkrum dögum Hóta að standa í vegi „fallegs“ frumvarps Mætir ræningjunum í fyrsta sinn Segja ekki hvort Pútín ætli að hitta Selenskí Sakfelldur fyrir að hafa beitt konur kynferðisofbeldi Staðfesta ábyrgð Rússa á því að malasíska þotan var skotin niður Trump með verri ímynd á heimsvísu en Xi og Pútín Sláandi tölur um aflýst flug til Nuuk-flugvallar Málverk af Grænlandi undir stjórn Trumps vekur athygli „Táknrænt sterk“ forysta Grænlands hefst í dag Bandaríkjaforseti vill þiggja lúxusþotu frá Katar að „gjöf“ Sakar Rússa um að hafa brennt stærstu verslunarmiðstöð Póllands Leysa upp samtökin og leggja niður vopn Vopnahlé hélt í nótt og viðræðum fram haldið Láta bandarískan gísl lausan Mun bíða Pútíns í Tyrklandi á fimmtudag Vilja leggja réttarríkið til hliðar „Mikilvæg skref“ en allt velti á því hvort Pútín sé í stuði fyrir frið Vopnahléið heldur en vígahugur ríkir enn Sjá meira