Engin lyf duga á HIV-afbrigðið 14. febrúar 2005 00:01
Bráðsmitandi afbrigði HIV-veirunnar hefur fundist í Bandaríkjunum. Engin lyf virðast duga á þetta afbrigði, sem dregur menn til dauða á mun skemmri tíma en hingað til hefur sést. Afbrigðið fannst í New York í síðustu viku og hefur valdið töluverðu uppnámi. Þau lyf sem hingað til hafa getað slegið á veiruna duga ekki gegn þessu afbrigði auk þess sem það leiðir til alnæmis á mun skemmri tíma en þau afbrigði HIV-veirunnar sem þekkst hafa hingað til. Yfirmaður heilbrigðismála í New York segir tíðindin grafalvarleg og voru um helgina gefin út fyrirmæli til allra heilbrigðisstofnana í borginni um að taka þá sem nýlega voru greindir til nánari skoðunar til að ganga úr skugga um að þeir væru ekki með þetta nýja afbrigði. Það var maður á fimmtugsaldri sem greindur var, en hann hafði átt mök við hundruð karlmanna án þess að nota verju. Haraldur Briem sóttvarnalæknir segir enn óljós hvort að bráð og yfirvofandi hætta stafi af þessu afbrigði. Það sé athyglisvert að sá sem hafi sýkst hafi ekki verið í neinni lyfjameðferð áður og því sé líklegt að veiran sé komin annars staðar frá og hugsanlega hafi hún umbreyst vegna lyfjaónæmis. Spurður hvaða afleiðingar þetta geti haft segir Haraldur að ef þessi tiltekni stofn breiðist út séu meðferðarúrræði mun takmarkaðri og því gæti afbrigðið orðið erfitt viðureignar. Afbrigðið minni jafnframt á að alnæmisfaraldurinn sé ekki liðinn hjá og sú meðferð sem boðið sé upp á í dag geti orðið miklu áhrifaminni í framtíðinni. Sumir alnæmissérfræðingar segja ótímabært að draga víðtækar ályktanir vegna þess nýja veiruafbrigðis og saka starfsbræður sína í New York um að skelfa fólk. Haraldur er ekki sammála því. Honum finnist nauðsynlegt að vekja athygli á afbrigðinu, sérstaklega hjá þeim sem séu með áhættuhegðun. Björninn sé langt því frá unninn og fólk þurfi að gæta sín svo það smitist ekki.
Erlent Fréttir Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Innlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Fleiri fréttir Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Ný landsstjórn boðar óbreytt ríkjasamband við Danmörku Fylgdust með rússneskum kafbátum við sæstreng í Norðursjó Sjá meira