Sögð leggja grunn að árás á Íran 14. febrúar 2005 00:01
Stríðstólin sveima yfir Íran, samkvæmt fregnum bandarískra fjölmiðla, sem segja stjórnvöld í Washington leggja grunninn að innrás. Mannlausar eftirlitsflugvélar hafa verið sendar frá Írak yfir landamæri Írans undanfarið ár eða svo til að safna upplýsingum um kjarnorkuáætlun Írana, samkvæmt Washington Post. Einnig er leitað veikleika í loftvörnum landsins. Eftirlitsflugvélarnar eru búnar hátæknibúnaði, ratsjá, myndavélum og loftsíum til að greina minnstu vísbendingar um hvað Íranar hyggjast fyrir. Þó að bandarískir embættismenn neiti því opinberlega að eftirlitsvélar séu á sveimi yfir Íran hafa þær sést þar ítrekað og Washington Post hefur heimildir fyrir ferðunum. Það þykja stórtíðindi að mannlausum eftirlitsvélum sé beitt í Íran því að það telst til undirbúnings innrásar að leggjast í eftirlit af þessu tagi þó að þessum aðferðum sé einnig beitt til að hræða. Að auki hafa stjórnvöld í Washington skipað fyrir um að leyniþjónustur taki saman heildarskýrslu um Íran, sambærilega við þá sem tekin var saman um Írak í aðdraganda stríðsins þar. Miklar efasemdir komu fram um upplýsingarnar í þeirri skýrslu sem reyndust að lokum rangar hvað gjöreyðingavopnaeign Íraka varðaði. Af þeim sökum efast margir um það hvort treysta megi því sem bandarískar leyniþjónustur segja um Íran. Í síðasta mánuði greindi rannsóknarblaðamaðurinn Seymour Hersh frá því að innrás í Íran væri fyrirhuguð og að til hennar gæti komið þegar í sumar. Því hefur verið neitað enda óvíst um stuðnings innanlands sem utan. Helsti talsmaður demókrata í utanríkismálum, Joseph Biden þingmaður, kvatti í gær stjórnvöld í Washington til að taka frekar höndum saman við Evrópuríki sem reynt hafa að semja við Írana. Hann sagði nauðsynlegt að bregðast þegar við hugsanlegum vanda í Íran til að koma í veg fyrir að innrás verði nauðsynleg seinna meir.
Erlent Fréttir Mest lesið Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Erlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Innlent Posarnir komnir í lag á ný Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Erlent Fleiri fréttir Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Fjarhægrimenn gætu fundið bragðið af völdum í fyrsta sinn Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Ítrekar kröfu á Falklandseyjar: Ekki duttlungar heldur „lífsnauðsyn“ Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Árás á höfuðstöðvar Öryggisstofnunar Úkraínu Kviðdómendur fá enn eitt tækifæri Ákærður fyrir að brjóta á börnum Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Grænlendingar fá fría læknisþjónustu í Danmörku Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Óttast að yfir áttatíu hafi farist Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Sjá meira