Erlent

Mótmæltu kapítalisma í Moskvu

Um þúsund ungir róttæklingar gengu um götur Moskvu í dag og mótmæltu kapítalisma og kröfðust sósíalisma og frelsis í landinu. Það voru hópar kommúnista og þjóðernissinna sem skipulögðu mótmælin, en þeim líkar illa hvernig málum er komið í Rússlandi. Þess var auk þess krafist að Vladímír Pútín, forseta Rússlands, færi frá völdum. Óeirðalögregla fylgdist vel með mótmælunum. Ekki hafa borist fregnir af átökum en talsmaður annars hópsins sem stóð að mótmælunum segir 10 félaga sína hafa verið handtekna á lestarstöð í Moskvu þegar þeir voru á leið til mótmælanna.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×