VG vill ekki álver í Helguvík 24. maí 2005 00:01 "
Við teljum að það sé komið nóg af álversuppbyggingu hér á landi og við munum leggjast gegn þessari framkvæmd innan stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur," segir Tryggvi Friðjónsson, fulltrúi Vinstri grænna í stjórn Orkuveitunnar. Fulltrúar Norðuráls, Reykjanesbæjar og Hitaveitu Suðurnesja hafa undirritað samkomulag um könnun á möguleikum á rekstri álvers í Helguvík sem áætlað er að gæti tekið til starfa á árunum 2010 til 2015. Hitaveita Suðurnesja hefur átt samstarf við Orkuveituna um stækkun álversins á Grundartanga og hefur litið hýru auga til frekara samstarfs við OR vegna álvers í Helguvík. Tryggvi segir skýran mun á þeirri ákvörðun Vinstri grænna að samþykkja stækkun álversins á Grundartanga og þeirri ákvörðun að leggjast gegn framkvæmdum í Helguvík. "Það er stigsmunur á því að stækka álver sem fyrir er og að leggja af stað í nýjan leiðangur auk þess sem aðrar forsendur voru til staðar við stækkunina á Grundartanga sem tengjast meðal annars öðrum virkjanaframkvæmdum í landinu." Guðlaugur Þór Þórðarson, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í stjórn Orkuveitunnar, telur málið anga af vandræðgangi R-listans. "Þetta mál hefur verið lítið rætt í stjórninni en þetta er mikið vandræðamál fyrir meirihlutann og Vinstri grænar ber jafn mikla ábyrgð og við sjálfstæðismenn á uppbyggingunni á Grundartanga. Nýkjörinn formaður Samfylkingarinnar, sem staðið hefur fyrir stóriðjustefnu í Reykjavík, er allt í einu farinn að tala gegn henni og menn spyrja sig hvort hún sé búin að taka u-beygju í þessu máli eins og mörgum öðrum," segir Guðlaugur. Ekki náðist í fulltrúa Samfylkingarinnar í stjórn Orkuveitunnar, Sigrúnu Elsu Smáradóttur, í gær. Næsti stjórnarfundur Orkuveitunnar er 1. júní.
Fréttir Innlent Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Fleiri fréttir Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Sjá meira