Blóði drifin saga 16. febrúar 2005 00:01
Líbanon er sannkallaður suðupottur ólíkra trúarhópa. Þar búa ýmsir kristnir trúarhópar, en maronítar eru þeirra fjölmennastir, súnníar, sjíar og drúsar, sem raunar eru náskyldir sjíum. Framan af tuttugustu öld lifðu íbúar landsins í sátt og samlyndi og var Beirút til dæmis kölluð París Mið-Austurlanda vegna þess að borgin var miðstöð fjármála og viðskipta á svæðinu. Á áttunda áratugnum fór hins vegar að síga á ógæfuhliðina, meðal annars af því að hundruð þúsunda Palestínumanna höfðu flúið til landsins. Þegar þeir tóku að skipuleggja skæruhernað þaðan gegn Ísraelum tóku þeir síðarnefndu að styðja falangista, flokk maroníta, til hernaðaraðgerða. Sýrlendingar, sem misst höfðu Gólanhæðir til Ísraelsmanna í sex daga stríðinu 1967, gripu tækifærið til að klekkja á Ísraelsmönnum og aðstoðuðu því trúbræður sína í Líbanon. Átökin mögnuðust upp um allan helming árið 1982 þegar Ísraelsmenn réðust inn í Líbanon og Íranar hófu stuðning við Hizbollah-samtökin. Talið er að 150.000 manns hafi týnt lífi í borgarastyrjöldinni. Árið 1989 samþykktu stríðandi fylkingar að setjast að samningaborðinu. Þá var hin sérstaka stjórnskipan landsins fest enn betur í sessi en hún kveður á um skiptingu þingsæta eftir trúarhópum. Forsetinn kemur alltaf úr röðum maroníta, forsætisráðherrann er súnníi og forseti þingsins sjíi. Sýrlendingar tóku að sér að varðveita friðinn í Líbanon og því hafa þeir haldið þar úti fjölmennu herliði. Þeir hafa ekki látið þar við sitja heldur hafa vélað um stjórnmálaþróun landsins með því að koma stjórnmálamönnum hliðhollum sér til valda, til dæmis Emile Lahoud, núverandi forseta. Þessu til viðbótar hafa ráðamenn í Damaskus stutt ýmis samtök á svæðinu, eins og Hizbollah, sem berjast gegn ísraelskum stjórnvöldum og bandamönnum þeirra. Síðastliðið haust samþykkti Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna ályktun þar sem skorað var á Sýrlendinga að kalla 14.000 manna herlið sitt frá Líbanon og líbönsk stjórnvöld hvött til að virða eigin stjórnarskrá og efna til forsetakosninga. Þessi ályktun var að engu höfð, herlið Sýrlendinga er enn í Líbanon og líbanska þingið breytti stjórnarskránni til að heimila Lahoud að sitja þrjú ár í viðbót - eftir þrýsting frá Sýrlendingum. Því ákvað Rafik Hariri, sem lengi hafði haft efasemdir um áhrif Sýrlendinga á þjóðmálin, að segja af sér forsætisráðherraembætti.
Erlent Fréttir Mest lesið Þau eru tilnefnd sem maður ársins Innlent Úkraína fái tryggingar sem jafngilda 5. greininni Erlent Hafi hnakkrifist í teiti hjá Conan stuttu fyrir morðið Erlent Óvíst hvort Guðmundur Ingi snúi aftur í ráðuneytið Innlent Rannsaka hvort feðgarnir fengu herþjálfun á Filippseyjum Erlent Meðalbílaleigubíllinn verði fyrir mestum áhrifum Innlent Fjölgun landsmanna það eina sem hafi komið í veg fyrir tekjufall Rúv Innlent Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Innlent Segjast hafa myrt átta sæfarendur til viðbótar Erlent Skýrslan ekki til neins ef ekki verði brugðist við Innlent Fleiri fréttir Segjast hafa myrt átta sæfarendur til viðbótar FDA samþykkir tvö ný lyf gegn ónæmum lekandabakteríum Vill fimm milljarða Bandaríkjadala frá BBC Rannsaka hvort feðgarnir fengu herþjálfun á Filippseyjum Úkraína fái tryggingar sem jafngilda 5. greininni Hafi hnakkrifist í teiti hjá Conan stuttu fyrir morðið Lögðu á ráðin um sprengjuárásir í Kaliforníu Grönduðu kafbát í fyrsta sinn með neðansjávardróna Segir Reiner hafa verið myrtan vegna andúðar í sinn garð Krefjast þess enn að Úkraínumenn hörfi frá Donbas Spjótin beinast að syni Reiners Ætla að herða lög um byssur enn frekar eftir árásina Starfsmenn Louvre mótmæla slæmum aðstæðum Hálfíslensk hljómsveit skilgreind öfgasamtök í Rússlandi Morðinginn í Brown gengur enn laus Heyrði byssuhvellina: Skotvopnalöggjöfin rædd á kaffistofunni Sílebúar tóku Kast Árásarfeðgarnir nafngreindir Úkraínumenn reiðubúnir til að falla frá aðild að Nató Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Skotmennirnir feðgar Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Einn í haldi í tengslum við skotárás í Brown-háskóla Rabbíni drepinn í árásinni Grunaðir um að skipuleggja hryðjuverk á jólamarkaði Tíu drepnir í skotárás á gyðingahátíð Tveir látnir eftir skotárás í háskóla Tvinn-rafmagnsflugvél sem lækka á fargjöldin Rannsókn á meintri gagnaöflun um Giuffre felld niður Þingmenn bannaðir á krám vegna skattahækkana Sjá meira