Erlent

Hægri- og miðstjórn ekki mynduð

Angela Markel, leiðtogi Kristilegra demókrata, sagðist búast við því að henni yrði falið að mynda nýja ríkisstjórn í Þýskalandi, en samkvæmt útgönguspám virðist stjórn Gerhards Schröders kanslara fallin. Hún viðurkenndi þó að kristilegir demókratar virtust ekki ætla að ná markmiði sínu um meirihlutastjórn hægri- og miðflokka því samkvæmt útgönguspám fá Kristilegir demókratar og Frjálslyndir demókratar aðeins 47 prósent atkvæða. Það bendir því ýmislegt til að hún verði að leita til Jafnaðarmannaflokks Schröders um samstarf og mynda fyrstu stóru samsteypustjórnina frá því á sjöunda áratugnum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×