Íslendingur særist illa í Írak 9. febrúar 2005 00:01
Cesar Arnar Sanchez, liðlega tvítugur íslenskur hermaður í Írak, særðist alvarlega í flugskeytaárás í Írak síðustu nótt. Hann hefur verið mánuð í Írak og er þetta önnur sprengjan sem hann verður fyrir á fjórum dögum. Cesar Arnar verður 21 árs í næsta mánuði og er landgönguliði í bandaríska sjóhernum með undirforingjatign. Hann er fæddur á Íslandi en bjó í fimm ár í Bandaríkjunum en fluttist síðan til Íslands. Hann hefur verið eitt ár í hernum og var sendur til Íraks fyrir mánuði. Í morgun fékk móðir hans, Arna Bára Arnarsdóttir símtal frá honum. Hún segir að flugskeyti hafi lent skammt frá honum og hann hafi fengið sprengjubrot á alla vinstri hliðina. Hann sé með 2. flokks áverka og alvarlega særður og allar líkur séu á að hann muni missa sjón á öðru auga. Herinn skiptir áverkum í þrennt: 1. flokkur er minniháttar meiðsl, 2. flokkur alvarleg meiðsl, eins og Cesar Arnar hlaut, og 3. flokkur er þegar bani hlýst af. Arna segir að Cesari hafi liðið mjög illa og hann hafi verið ringlaður. Cesar Arnar verður væntanlega fluttur á hersjúkrahús í Þýskalandi og þaðan til Maryland í Bandaríkjunum þangað sem alvarlega særðir hermenn eru sendir. En þetta er ekki fyrsta sprengjuárásin sem hann lendir í. Arna segir að á laugardaginn hafi hann líka lent í sprengju og þeyst nokkra metra aftur á bak á vegg. Hann hafi sloppið vel, aðeins marist en það hafi aðeins verið stoltið sem hafi særst. Arna ætlar að reyna að hitta son sinn sem fyrst. Hún segist ætla að gera allt sem hún geti til þess að komast til Maryland um leið og hann komi þangað, Cesar vilji fá hana. En hvernig líður íslenskri móður þegar sonur hennar er á átakasvæði í Írak? Arna segir sér ekki líða vel enda sé það ekki draumur fyrir foreldra að eiga börn í stríði. Aðspurð hvort hún hafi verið í sambandi við Cesar segir Arna að hún hafi heyrt í honum annan hvern dag í gegnum MSN-spjallforritið.
Erlent Fréttir Mest lesið Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Vara við snörpum hviðum Veður Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður Innlent Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Erlent Fleiri fréttir Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Fjarhægrimenn gætu fundið bragðið af völdum í fyrsta sinn Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Ítrekar kröfu á Falklandseyjar: Ekki duttlungar heldur „lífsnauðsyn“ Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Árás á höfuðstöðvar Öryggisstofnunar Úkraínu Kviðdómendur fá enn eitt tækifæri Ákærður fyrir að brjóta á börnum Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Grænlendingar fá fría læknisþjónustu í Danmörku Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Óttast að yfir áttatíu hafi farist Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Sjá meira