Hertar öryggiskröfur í Írak 28. janúar 2005 00:01
Á annan tug óbreyttra borgara og íraskra lögreglumanna létust í árásum uppreisnarmanna í Írak í gær. Þá voru fimm bandarískir hermenn drepnir í þremur árásum í Bagdad. Uppreisnarmenn súnní-múslima, sem hafa beðið fólk að sniðganga kosningarnar á morgun, hafa hótað hertum árásum og segja að spjótunum verði beint að kjörstöðum. Vegna þessa á enn að auka öryggiskröfur vegna kosninganna. Útgöngubann hefur verið lengt og landamærum landsins verður lokað, sem og flugvellinum í Bagdad. Þá hefur enn ekki verið tilkynnt hvar kjörstaðirnir eru. Á kjördag verður lokað fyrir bílaumferð óbreyttra borgara. Stuðningsmenn hryðjuverkamannsins Abu Musab al-Zarqawi sögðust í gær hafa myrt einn af frambjóðendum á lista Iyad Allawi, bráðabirgðaforsætisráðherra landsins. Í gærkvöldi höfðu þær fréttir ekki verið staðfestar en mennirnir sögðust ætla að birta myndir af morðinu á vefsíðu sinni. Í gær kusu um 280 þúsund Írakar búsettir utan heimalands síns utankjörstaðar í fjórtán löndum.
Erlent Fréttir Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Faðir Mary drottningar látinn Erlent Mette Frederiksen leitar yfir miðju Erlent Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Innlent Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Erlent Fleiri fréttir Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Ný landsstjórn boðar óbreytt ríkjasamband við Danmörku Fylgdust með rússneskum kafbátum við sæstreng í Norðursjó Fundaði með Trump eftir harða gagnrýni á NATO Sjá meira