Sveitasamfélag í borginni 5. ágúst 2005 00:01
Búið er í sjötíu og fimm íbúðum og húsum í Norðlingaholti en íbúum fer ört vaxandi. Blaðamaður tók hús á nokkrum þeirra og kannaði aðstæður og viðhorf frumbyggja í þessu nýja samfélagi. Hafdís Engilbertsdóttir flutti í hverfið fyrir tveimur mánuðum ásamt eiginmanni sínum og tveimur börnum á unglingsaldri en elsta dóttirin er að koma sér fyrir í næsta húsi fyrir neðan foreldra sína. "Það tekur svolítið á þolrifin að búa hérna ennþá," segir húsfreyjan. "Hér eru háværar vinnuvélar í gangi allan daginn og hrúgur og drasl úti um allt sem fylgja svona nýbyggingum en þá lítur maður bara til náttúrunnar hér í kring og þá tekur maður gleði sína á ný. En ég féll fyrir þessu svæði þegar ég kom hingað fyrst, mér fannst skipulagið flott og ekki skemmir fyrir þetta dásamlega útsýni sem maður getur notið af þessum risastóru svölum," segir húsfreyjan og býður blaðamanni út á svalir en þar er fyrir fríður kvenna- og vinahópur Hafdísar að kanna aðstæður frumbyggjans. Hafdís fær tíðar heimsóknir í nýja hverfið frá sínu fólki en hún segist jafnframt vera orðin málkunnug nágrönnum sínum svo hún gerir ráð fyrir að Norðlingaholtið verði ekki aðeins svefnbær heldur einnig hlýlegt sveitasamfélag í borginni. En henni þykir heldur snemmt að hugsa um fullmótað hverfi í Norðlingaholti því enn er margt við hennar aðstæður sem minnir hana á að hverfið er langt frá því að vera það. "Héðan er frekar langt að sækja alla þjónustu, hér er líka lítið um að vera fyrir þá yngri enn sem komið er og svo fæ ég ekki Fréttablaðið svo dæmi séu tekin," segir húsfreyjan og lítur í átt til Rauðhóla til að taka gleði sína á ný. "Ég fæ þó allaveganna póstinn," segir hún eftir að gleðin er tekin. Í einni af þeim fáu blokkum sem tilbúnar eru í hverfinu býr Erna Björk Svavarsdóttir en hún flutti inn um miðjan júní. Hún segir að börn sín sem eru á grunnskólaaldri kvarti mikið undan því að ekkert sé um að vera í þessu hverfi en hún er vongóð um að líf færist í tuskurnar þegar skólinn byrjar. Hún gerir sér vonir um að hverfið verði fjölskylduvænt þar sem börn geti áhyggjulaust unað við leik þar sem umferð verði ekki þung í hverfinu og svo geta þeir sem eldri eru gengið á göngustígum um fallega náttúruna sem rammar hverfið inn. "Ég held að þetta verði svona sveit í borginni," segir hún og er þegar farin að láta sig dreyma.
Fréttir Innlent Mest lesið Hafnaði hermönnum Trump: „Fullveldið er ekki til sölu“ Erlent Fjórtán börn handtekin eftir að drengur lést í eldsvoða Erlent Segist hafa skipað hæfasta fólkið þvert á athugasemdir verkfræðinga Innlent „Maður skyldi ætla að það þurfi tiltekið siðferði til að starfa í lögreglunni“ Innlent Ekki nein þörf á notkun kjarnorkuvopna og vonar að svo verði ekki Erlent Föður rafmyntajöfurs rænt og skorinn af honum fingur Erlent Býður upp á sögugöngu um svæðið sem hún vill vernda Innlent Vakinn af „ölvunarsvefni“ inni á baði og brást ókvæða við Innlent Eldur í bíl við fjölbýlishús í Urriðaholti Innlent Til marks um „skringilega“ skautun víða um heim Erlent Fleiri fréttir Óvenjulítill snjór á hálendinu auki rýrnun jökla í sumar Segist hafa skipað hæfasta fólkið þvert á athugasemdir verkfræðinga Bæjarstjóri Ölfus biðlar til ríkisins vegna Garðyrkjuskólans „Maður skyldi ætla að það þurfi tiltekið siðferði til að starfa í lögreglunni“ Snjólaust á fjöllum og Garðyrkjuskólinn grútnar niður Njósnamálið, hræringar í evrópskum stjórnmálum og fjárhagur borgarinnar Eldur í bíl við fjölbýlishús í Urriðaholti Vakinn af „ölvunarsvefni“ inni á baði og brást ókvæða við Býður upp á sögugöngu um svæðið sem hún vill vernda Sex ára framtíðar sauðfjárbóndi á Rangárvöllum Samfylkingin bætir við sig og sauðburður á fullu Sinueldur við Landvegamót Sigldi ölvaður utan í annan bát og endaði í grjótgarði Kvartöld liðin frá jarðskjálftunum 17. júní á Suðurlandi Samfylkingin með 29 prósenta fylgi „Þetta hefur verið sorgleg þróun“ Mörg hundruð óseldar fasteignir og sótt í sund Rykið dustað af sólbekkjunum Nágrannaerjur, grjótkast og „víðáttuölvuðum“ veitt eftirför Nýtt 44 herbergja hjúkrunarheimili byggt í Hveragerði „Þetta er vítahringur sem endurtekur sig í sífellu!“ Öskrandi reiður í vandræðum með að leigja rafskútu Glussakerfið ónýtt eftir brunann Hefur áhyggjur af arftaka sínum Sér fram á bjarta framtíð fyrir börnin þökk sé styrknum Umtöluð frelsissvipting og stórslösuð sjónvarpsstjarna Búið að innsigla Kastrup: „Góður að taka á móti fólki en ömurlegur í tölvupóstum“ Tifandi tímasprengjan sem grunuð er um frelsissviptingu „Ekki bara rekinn heldur á staðnum og fyrirvaralaust“ „Vona að þú sofir vel“ Sjá meira