Mökkurinn er yfir Normandí 13. desember 2005 06:45 Sól tér sortna. Þótt slökkviliðsmönnum hefði gengið ágætlega að ráða niðurlögum eldsins skyggði mökkurinn á sólina um tíma í gær.
Slökkviliðsmenn hófu í gær að slökkva eldana ógurlegu sem upp komu í Buncefield-olíubirgðastöðinni í Hertfordskíri, skammt norður af Lundúnum í gær. Sprengingarnar sem fylgdu eldunum gerðu að verkum að ekki var hægt að hefja slökkvistarf fyrr. Slökkviliðsmenn lögðu til atlögu við vítiseldana strax í gærmorgun en aðstæður voru nokkuð erfiðar þar sem bætt hafði í vindinn og áttin breyst. Franska veðurstofan greindi frá því að mökkurinn væri kominn til Normandí og er búist við að hans verði vart á Spáni á morgun. "Við fetum ókunna stigu. Þetta er mesti eldsvoði sinnar tegundar sem komið hefur upp í Bretlandi og Evrópu," sagði Roy Wilsher, slökkviliðsstjóri í Hertfordskíri á blaðamannafundi í gær. Sérstakri efnakvoðu var sprautað á eldinn og var á Wilsher að heyra að hann væri spenntur að sjá árangurinn af því. "Við erum ekki einu sinni vissir um hvernig þessi ógnarhiti mun fara með kvoðuna. Hún gæti þess vegna gufað upp." Áhyggjur slökkviliðsstjórans virtust hins vegar óþarfar því um miðjan daginn í gær hafði tekist að kæfa eldinn í tíu af þeim tuttugu tönkum sem brunnu. Sjö tönkum tókst að bjarga alveg með því að sprauta 32.000 lítrum af vatni á mínútu yfir þá alla nóttina. Rannsókn á eldsupptökum er hafin en að sögn Frank Whiteley, lögreglustjóra í héraðinu, á enn eftir að yfirheyra stjórnendur stöðvarinnar. Vonast er til að þeir geti gefið upplýsingar sem varpað geta ljósi á málið. "Vel má vera að þegar eldarnir hafa verið slökktir þá verði lítið sem ekkert eftir fyrir tæknimenn okkar að rannsaka. Ég vonast þó til að við leysum gátuna á endanum." Whiteley ítrekaði í gær að ennþá benti allt til þess að óhapp væri orsök brunans en þó væri öllum möguleikum haldið opnum. Í síðustu viku birtist myndband frá al-Kaída þar sem hvatt var til árása á olíumannvirki þar sem olíunni hefði verið stolið úr löndum múslima.
Erlent Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Fleiri fréttir Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að árásum á Kharg-eyju Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september „Framkvæmdastjórnin virðir vilja íslensku þjóðarinnar“ Árásarmaðurinn enn ófundinn Skipulögð leit eftir skotárás á hátíð „Nú er komið að mér“ Ávarpar norsku þjóðina í fyrsta skipti sem konungur Sjá meira