Rita kraftmeiri en Katrín 21. september 2005 00:01
Borgarstjóri Houston, stærstu borgar Texas, gaf í gær út áskorun til íbúa borgarinnar sem búa næst sjó að koma sér í öruggt skjól innar í landi, þegar fellibylurinn Rita nálgast. Að sögn borgarstjórans, Bill White, eru borgaryfirvöld ekki fær um að sjá öllum á flóðahættusvæðunum fyrir fari og hann hvatti því vini og nágranna til að hjálpast að. Allt að ein milljón manna hafa fengið boð um að yfirgefa heimili sín enda er vindhraðinn talinn ná um 240 kílómetra hraða á klukkkustund. Rita fór hjá Flórídaskaga og Kúbu fyrr í vikunni og hefur síðan safnað í sig veðrinu yfir heitum sjó Mexíkóflóans. Vindhraði í bylnum var í gær kominn upp í meira en 220 km/klst og telst hann þar með "fjórða stigs" fellibylur og þar með jafnöflugur og fellibylurinn Katrín sem olli hamförunum í strandhéruðum Bandaríkjanna við norðanverðan Mexíkóflóa fyrir skemmstu. Íbúum Galveston, strandbæjar í Texas, og New Orleans í Louisiana var fyrirskipað að forða sér í skjól vegna hins aðsteðjandi skaðræðisstorms. Þeir sem unnið hafa að því að gera við flóðvarnargarða New Orleans keppast við að styrkja þá eins og kostur er áður en úrhellið sem fylgir Ritu skellur á borginni. Michael Chertoff, ráðherra heimavarna í bandarísku alríkisstjórninni, hvatti íbúa á hættusvæðunum til að hlýða áskorunum um að yfirgefa heimili sín. "Lærdómurinn er sá að þegar fellibylur skellur á er best að vera í skjóli fyrir tryllingi stormsins," sagði hann í morgunsjónvarpsviðtali á ABC-stöðinni. Um miðjan dag í gær var bylmiðja Ritu stödd um 420 km vestur af Key West á Flórída, yfir 1200 km aust-suð-austur af Corpus Christi í Texas, en í þá átt stefndi fellibylurinn á um 20 km hraða á klukkustund. Að mati veðurfræðinga gæti hann færst upp á land á laugardag einhvers staðar á bilinu frá Norður-Mexíkó til Louisiana, sennilegast í Texas. Chris Landsea, veðurfræðingur við fellibyljamiðstöðina í Miami, sagði að Rita gæti styrkst upp í fimmta stigs fellibyl, með vindhraða yfir 250 km/klst, er hann færist yfir heitan sjóinn í Mexíkóflóa. Sá möguleiki væri hins vegar líka fyrir hendi að það drægi úr styrk hans áður en hann gengi á land.
Erlent Fréttir Mest lesið Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Viðreisn tapar fylgi Innlent Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Innlent Fleiri fréttir Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að árásum á Kharg-eyju Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september Sjá meira