Öryggisgæsla hert í París 12. nóvember 2005 13:00 Um 250 manns komu saman nærri Eiffel turninum í París til að mótmæla ofbeldinu að undanförnu. MYND/AP
Frönsk yfirvöld gripu til frekari varúðarráðstafana í morgun og hertu öryggisgæslu mikið í höfuðborgini París. Búist er við óeirðum vegna ákvörðunar stjórnvalda um sólarhringsbann við almennum fundum utandyra, sem tók gildi í morgun. Þúsundir lögreglumanna standa vaktina í París, en óttast er að óeirðaseggir úr röðum fátækra afkomenda innflytjenda hvetji til skemmdarverka í borginni vegna fundabannsins sem er í gildi þar til klukkan sjö í fyrramálið. Ýmsir hópar hafa hvatt til ofbeldis í París með því að láta boð út ganga á netinu og með SMS-skilaboðum. Kveikt var í meira en 500 bílum í landinu nótt og um 460 bílum í fyrrinótt. Miðborg Parísar hefur að mestu sloppið við óeirðirnar sem einkennt hafa Frakkland undanfarna sextán daga, en eftir að Chirac forseti tilkynnti um róttækar aðgerðir stjórnvalda til að sporna gegn óöldinni, óttast menn að til óeirða kunni að koma í borginni. Ungmenni eyðilögðu hluta barnaskóla í bænum Savigny Le Temple sem er skammt suðaustur af París og einnig voru skemmdarverk unnin á orkustöð í bænum Amiens, með þeim afleiðingum að allur bærinn varð rafmagnslaus. Franska lögreglan handtók um tvö hundruð óeirðaseggi í nótt og hafa alls rúmlega tvö þúsund og fjögur hundruð manns verið handteknir síðustu tvær vikurnar. Pierre Mutz, yfirmaður lögreglunnar í París, segir að aðgerðirnar sem gripið sé til, miði ekki að því að hindra að almenningur geti gengið um eða heimsótt höfuðborgina, heldur séu þær til að tryggja að fólk komist vandræðalaust í og úr vinnu.
Erlent Fréttir Mest lesið Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Erlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Innlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Innlent Framlengir vopnahléið og herkvína Erlent Fleiri fréttir Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein hinsta ósk Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Sjá meira