Fátækt og stríð hjá milljarð barna 9. desember 2004 00:01
Annað hvert barn í heiminum þjáist af fátækt, stríðsátökum eða alnæmisfaraldrinum að því er fram kemur í ársskýrslu Barnahjálpar sameinuðu þjóðanna. Þetta þýðir að meira en milljarður barna á um sárt að binda. "Þegar helmingur barna heimsins vex úr grasi vannærður og heilsutæpur, þegar skólar verða skotmörk og heilu þorpin tæmast af völdum alnæmis höfum við svikist um að efna loforðið við æskuna," sagði Carol Bellamy, framkvæmdastjóri Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna. Bellamy gagnrýndi ríki heims fyrir að uppfylla ekki þau réttindi barna sem kveðið er á um í barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna frá 1989. Hún sagði að þetta væri að hluta til vegna þess að stjórnvöld hefðu brugðist í efnahagsumbótum og því að bæta stöðu mannréttindamála en fleira kæmi þó til. "Of margar stjórnir taka meðvitað ákvarðanir sem skaða börn," sagði hún og vísaði þar meðal annars til stríðsreksturs. Helmingar þeirra 3,6 milljóna einstaklinga sem hafa fallið í stríðsátökum hafa verið á barnsaldri. Að auki hafa sex milljónir barna orðið fyrir varanlegum líkamlegum skaða. Það er ekki aðeins í vanþróuðum löndum og þróunarlöndum sem börn stríða við erfiðleika. Fátækt fer vaxandi í ellefu af þeim fimmtán iðnvæddu ríkjum sem greinarhöfundar höfðu upplýsingar um. Þar hefur hlutfall barna sem elst upp í fátækt farið hækkandi. 22 prósent Bandarískra barna búa við fátækt og 16,6 prósent í Póllandi. Ríki heims settu sér það markmið með samþykkt þúsaldaráætlunar Sameinuðu þjóðanna að draga úr dauðsföllum barna undir fimm ára aldri um tvo þriðju frá 1990 til 2015. Í nýju skýrslu Barnahjálparinnar er komist að þeirri niðurstöðu að ríkin sunnan Sahara í Afríku og lýðveldi fyrrum Sovétríkjanna nái þessu markmiði ekki. Í dag látast 29 þúsund börn daglega, flest af völdum viðráðanlegra sjúkdóma.
Erlent Fréttir Mest lesið „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Innlent Hormússundi lokað á ný Erlent „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Innlent Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Erlent Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Innlent Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Innlent Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Innlent Meirihlutinn fallinn samkvæmt nýrri könnun Innlent Handtekinn grunaður um að hafa ráðist á leigubílstjóra Innlent Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Innlent Fleiri fréttir Hormússundi lokað á ný Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Sjá meira