Innlent

Enn ófært til Eyja

Enn er óært frá Vestmannaeyjum vegna þoku og á að athuga með flug þangað klukkan tíu. Flug hófst í gærkvöldi en var aflýst um miðnætti. Að minnstakosti 200 þjóðhátíðargestir eru innlyksa í Vestmannaeyjum, þar sem hvorki er hægt að fljúga á Bakka né til Reykjavíkur. Fullt var með Herjólfi í næturferðinni, en hann fer aftur til lands klukkan átta. Hátt í hundrað manns gistu í Íþróttahúsinu í Eyjum í nótt og einhver hópur í heimahúsum og í gistihúsum, en sárafáir voru í dalnum í nótt.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×