Kosningar endurteknar fyrir áramót 27. nóvember 2004 00:01
Úkraínska þingið hefur lýst forsetakosningarnar sem fóru fram um síðustu helgi ógildar. Þá samþykkti þingið einnig vantrausttillögu á yfirkjörstjórnina sem á miðvikudaginn staðfesti sigur Viktors Janukovitsj í kosningunum. Það gerði yfirkjörstjórnin þrátt fyrir gríðarleg mótmæli hundruð þúsunda úkraínskra borgara og vestrænna ríkja sem telja að Janukovitsj hafi svindlað í kosningunum á kostnað Viktors Júsjenko. Þó að þingið hafi lýst kosningarnar ógildar með samþykki 255 þingmanna af 429 er samþykktin ekki lagalega bindandi. Hún er hins vegar talinn vera mikill sigur fyrir stjórnarandstöðuna. Vantraustið á yfirkjörstjórnina hefur heldur ekki neina lagalega þýðingu en þykir auka þrýstinginn á Janukovitsj. Evrópusambandið hefur farið fram á að kosningarnar verði endurteknar fyrir áramót og er talið líklegt að það verði niðurstaðan. Javier Solana, utanríkisráðherra sambandsins, hefur tekið þátt í viðræðum um friðsamlega lausn deilunnar. Hann segir að ef kosningarnar verði ekki endurteknar muni það hafa afdrifaríkar afleiðingar fyrir samband Úkraínu við Evrópusambandsríkin. Tugir þúsunda stuðningsmanna Júsjenko hafa mótmælt á götum Kænugarðs, höfuðborgar Úkraínu, síðan á sunnudaginn. Júsjenko, sem vill efla tengslin við Vesturlönd, ávarpaði fjöldann í gær og sagði að aðeins ein lausn kæmi til greina og hún væri að boða til nýrra kosninga. Hann vill að kosið verði aftur sem allra fyrst og hefur nefnt 12. desember sem hentuga dagsetningu. Júsjenko hvatti fólkið til að halda mótmælunum áfram allt þar til lausn fengist í málið. Janukovitsj, sem vill bæta samskiptin við Rússland í stað þess að efla tengslin við Vesturlönd, hefur gagnrýnt framferði Júsjenko í vikunni. Hann segir aðgerðir hans jafngilda tilraun til valdaráns.
Erlent Fréttir Mest lesið Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Gunnar Þórðarson er látinn Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Innlent Mosfellsdalur minnti á vígvöll Innlent Horfðu á bílinn velta niður fjallið Innlent Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Erlent Hvað er í boði um verslunarmannahelgina? Innlent Fleiri en einn hafi verið að verki Innlent „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Innlent Fleiri fréttir Nítján ára Norðmaður dæmdur fyrir að taka að sér leigumorð á Englandi Bandaríkjamaður sagður smygla vopnum og málaliðum til Súdan Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Segjast hafa gert harða hríð að byltingarverðinum Minnst þrjátíu látnir í Japan Fjögur börn látin eftir loftárásir Rússa á borgir Úkraínu Neitaði að svara spurningum þingmanna Leita enn í rústunum í Japan „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Stofnandi Telegram ákærður og eftirlýstur í Rússlandi Tuttugu drengir á Gothia Cup týndir Ebólan komin í metstærð á mettíma Nýr forseti hét því að beita hernum gegn glæpum Þrettán látnir hið minnsta í Japan Írönum hótað hefndum eftir árás á herstöð Bandaríkjanna Ræddu Patriot-flaugar og friðarviðræður Vill að RFK gangi harðar fram gegn bólusetningum Fólk fast í verslunarmiðstöð eftir skjálftann í Japan „Við munum ná markmiðum okkar“ Vilja að Hæstiréttur taki afstöðu Stukku fram af Geimnálinni Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Bandarískir hermenn ekki látnir svara til saka á Bretlandseyjum Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Árásirnar haldi áfram skili viðræðurnar ekki sínu Önnur hitabylgja nálgast Spán Kveiktu í tveimur moskum Handtekinn við Kastrup eftir að tilkynnt var um meinta skammbyssu Fölsk játning í formi lags Sjá meira