Hættuviðvörun slegið á frest 28. desember 2004 00:01
Hugsanlegt er að veðurstofa Taílands hafi frestað því að gefa út viðvörun vegna yfirvofandi flóðbylgju af ótta við að viðvörunin gæti skaðað ferðamannaiðnað landsins, að því er embættismenn gáfu til kynna í dag. Sulamee Prachuab, sem er yfirmaður jarðskjálftastofnunar landsins, sagði að stofnunin yrði að sýna varkárni, því ferðamálaráð ríkisins áliti slíkar viðvaranir skaða ferðamannaiðnað rættust viðvaranirnar ekki. Stofnunin sendi frá sér viðvörun vegna yfirvofandi flóðbylgju á sunnudag, en í útsendingum til ferðamannastaða í landinu var hættan vanmetin og viðvörun var ekki birt á netinu fyrr en þremur klukkustundum eftir að fyrsta flóðbylgjan skall á suðurströnd Taílands. Flóðbylgjan mikla kom fyrst að taílenskum ströndum og eyjum aðfaranótt sunnudags, miðað við íslenskan tíma, um klukkustund eftir að öflugur jarðskjálfti varð undan strönd Indónesíu. Staðfest var í dag að meira en 1500 manns hafa farist í Taílandi en búist er við því að mun fleiri hafi farist en opinberar tölur segja til um. „Fyrir fimm árum sendi Veðurstofan frá sér viðvörun um hugsanlega flóðbylgju eftir að jarðskjálfti varð á Papúa í Nýju-Gíneu. Ferðamálayfirvöld kvörtuðu yfir því að slík viðvörun myndi hafa slæm áhrif á ferðamannaiðnaðinn," sagði Sumalee. Ferðamennska er helsta tekjulind Taílendinga. Yfirvöld eru afar uggandi yfir fréttum sem þau telja hugsanlegt að valdi tekjutapi í þessum geira. Surapong Suebwonglee, ráðherra upplýsinga- og samgöngutækni í Taílandi, sagði að nefnd óháðra sérfræðinga og taílenskra embættismanna yrði sett á stofn snemma í næsta mánuði. Nefndin myndi kanna hvort Veðurstofan hefði brugðist þeirri skyldu að gefa út viðvörun vegna hamfaranna í tíma. Staðfest tala fallinna er þegar komin yfir fimmtíu þúsund en óttast er að mun fleiri hafi fallið. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin segir hugsanlegt að helmingi fleiri hafi fallið í valinn áður en yfir lýkur vegna farsótta.
Asía - hamfarir Erlent Fréttir Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Segir í tísku að setja „alþjóðasamfélagið“ ofar eigin þjóð Erlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Innlent Fleiri fréttir Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja „alþjóðasamfélagið“ ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Sjá meira