22 létust í Mosul 21. desember 2004 00:01
Að minnsta kosti 22 liggja í valnum eftir sprengjuárás á bandaríska herstöð í nágrenni Mosul í Írak í dag. Mannskæðar sprengjuárásir af þessu tagi eru að verða daglegt brauð nú í aðdraganda þingkosninganna og Tony Blair, forsætisráðherra Breta, þótti því sýna nokkra fífldirfsku með því að dúkka óvænt upp í heimsókn í Bagdad í morgun. Minnst fimmtíu eru særðir eftir árásina í Mósúl í dag og vitað er að nokkrir bandarískir hermenn eru meðal hinna föllnu og særðu. Þetta er ein mannskæðasta árásin frá upphafi stríðsins í Írak en slíkar árásir færast nú í aukana jafnt og þétt eftir því sem líður að þingkosningum í landinu í lok janúar. Andspyrnuhópar hafa heitið því að hleypa kosningunum í uppnám og reyna með öllum ráðum að koma í veg fyrir þær. Árásin í Mósul var ekki sú eina í dag því olíuleiðsla var einnig sprengd í sundur og þekktur íraskur kjarnorkusérfræðingur var ráðinn af dögum. Það vakti því mikla athygli að mitt í öllum þessum hamagangi og ofbeldisöldu þá mætti Tony Blair, forsætisráðherra Breta, óvænt í heimsókn til Íraks og fór bæði til Bagdad og Basra. Blair lýsti því yfir á blaðamannafundi með Allawi, forsætisráðherra íröksku bráðabirgðastjórnarinnar, í hádeginu í dag að þeir írösku embættismenn sem ynnu að undirbúningi kosninganna væru ekkert annað en hetjur sem stofnuðu lífi sínu í hættu á hverjum degi í þágu lýðræðis.
Erlent Fréttir Mest lesið Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Erlent Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Innlent Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Innlent Inga of upptekin til að funda: „Við höfum ekki fjármagn, engan stuðning“ Innlent „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Innlent „Lóa í Víðum“ sveitarstjóraefnið Innlent Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Innlent Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Innlent Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Innlent Klukkan tifar og enn langt í land Erlent Fleiri fréttir Klukkan tifar og enn langt í land Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Hormússundi lokað á ný Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Sjá meira