Margir vissu af pyntingum 21. desember 2004 00:01
Nýjar upplýsingar frá leyniþjónustu Bandaríkjanna leiða í ljós að pyndingar bandarískra hermanna á írökskum föngum hafa verið mun víðtækari og kerfisbundnari en áður var talið. Jafnframt er nú ljóst að mun fleiri bandarískir embættis- og stjórnmálamenn vissu af þessu hátterni en hingað til hefur verið viðurkennt. Þessar nýju upplýsingar er að finna í ýmsum skjölum frá alríkislögreglunni, FBI, en þessi skjöl hafa verið lögð fram í dómsmáli sem bandarísku mannréttindasamtökin American Civili Liberties hafa höfðað á hendur Bandaríkjastjórn til að fá úr því skorið hvort brotið hafi verið á föngum í haldi stjórnarinnar. Í þessum skjölum er að finna skelfilegar lýsingar á því hvernig fangar í Írak eru teknir kyrkingataki, barðir og logandi sígarettum stungið inn í eyrun á þeim. Þessum pyndingum er lýst í minnisblaði frá FBI sem er dagsett um tveimur mánuðum eftir að upp komst um pyndingarnar í Abu Ghraib fangelsinu í Írak. Virðist því sem öll umfjöllunin og fordæmingin á því máli hafi ekki haft neitt að segja um bætta meðferð írakskra fanga. Þá eru einnig lýsingar á hrottalegri meðferð fanga í Guantanamo á Kúbu þar sem þeir eru hlekkjaðir á höndum og fótum, látnir liggja á gólfinu og pissa og kúka á sig, matar- og vatnslausir annað hvort í fimbulkulda eða steikjandi hita. Af þessum skjölum sem eru skrifuð á síðustu tveimur árum má einnig ráða að mun fleiri vissu af þessum pyndingum og yfirheyrsluaðferðum en hingað til hefur verið viðurkennt. Nokkuð stór hópur embættismanna í Washington hefur reglulega fengið upplýsingar um hversu víðtækar þessar pyndingar hafa verið án þess að grípa inn í. Þetta rennir stoðum undir það sem fangaverðirnir hafa sjálfir sagt, það er að þeir hafi aðeins verið að framfylgja skipunum sinna yfirmanna og að aðferðirnar hafi verið viðurkenndar. Aðeins nokkrir lágt settir hermenn hafa verið ákærðir og dæmdir fyrir illa meðferð á föngum í Abu Ghraib en enginn yfirmaður hefur enn tekið ábyrgð á málinu.
Erlent Fréttir Mest lesið Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Innlent Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Innlent Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Erlent Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Innlent „Við munum ná markmiðum okkar“ Erlent Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Innlent Ætlar að áfrýja dómnum Innlent Hátt í þúsund atkvæði komin: Margfalt fleiri mættu á fyrsta degi Innlent Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Erlent Fleiri fréttir Fólk fast í verslunarmiðstöð eftir skjálftann í Japan „Við munum ná markmiðum okkar“ Vilja að Hæstiréttur taki afstöðu Stukku fram af Geimnálinni Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Bandarískir hermenn ekki látnir svara til saka á Bretlandseyjum Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Árásirnar haldi áfram skili viðræðurnar ekki sínu Önnur hitabylgja nálgast Spán Kveiktu í tveimur moskum Handtekinn við Kastrup eftir að tilkynnt var um meinta skammbyssu Fölsk játning í formi lags Drífa segir nálgunarbann vannýtt úrræði Skutu niður meinta rússneska dróna í lofthelgi ESB í þriðja sinn Engar íranskar árásir gerðar á meðan sprengjuhlé Bandaríkjanna varir Þrír látnir eftir skothríð á matarhátíð í Seattle Netayahu sakar Mamdani um að „sá hatri“ Á fjórða hundrað þúsund hafa flúið heimili sín vegna gróðurelda „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Grunaður árásarmaður skotinn til bana í Berlín Fer enn huldu höfði Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Grunuðum ISIS-liða sleppt úr fangelsi í maí Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Lýsa eftir þekktum öfgamanni Modi féllst á kröfur „Kakkalakkanna“ Minnst einn látinn á Pride-hátíð í Berlín Bolsonaro yngri tilkynnir forsetaframboð Einn látinn eftir að flugvél endaði á húsþaki Sjá meira