Erlent

Átökin í Darfur verði stöðvuð

MYND/Reuters
Stjórnvöld í Súdan ákváðu í dag að leggja sitt af mörkum til að stöðva átökin í Darfurhéraði og óskuðu eftir því við Sameinuðu þjóðirnar og Afríkusambandið að þau biðluðu til uppreisnarmanna að gera slíkt hið sama. Frá þessu var greint að loknum neyðarfundi sem boðað var til í dag vegna ástandsins í héraðinu. Fyrr í morgun sakaði Afríkusambandið stjórnarher Súdans um að hafa rofið vopnahlé með þyrluárásum á þorpið Labadó í Suður-Darfur í gær en bardagar standa enn yfir. Sameinuðu þjóðirnar hafa gefið deilendum frest til áramóta til að ná friðarsamkomulagi. Um eitthundrað þúsund manns hafa látið lífið í átökum uppreisnarmanna og stjórnarliða undanfarin misseri og hátt í tvær milljónir manna hafa mátt flýja heimili sín. Hjálparstofnanir óttast að tala látinna kunni að margfaldast á næstu mánuðum, ef fram heldur sem horfir.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×