Erlent

Ný stjórn í Ísrael

Ný stjórn er í fæðingu í Ísrael sem er sammála um að eftirláta Palestínumönnum Gazasvæðið, og flytja þaðan á brott alla Ísraelsmenn. Vonir um frið hafa glæðst.  Eitt stærsta málið í deilum Palestínumanna og Ísraela eru landnemabyggðir gyðinga inni á svæðum palestínumanna. Á Gazasvæðinu búa um átta þúsund gyðingar innan um eina og hálfa milljón Palestínumanna, undir öflugri hervernd ísraelskra hersveita. Ariel Sharon hefur ekki haft stuðning meirihluta þingmanna við fyrirætlanir sýnar um að brottflutning Ísraela frá Gaza. Verkamannaflokkurinn, sem er í stjórnarandstöðu, styður hinsvegar brottflutning, og fékk Sharon í gærkvöldi heimild hjá eigin flokki, Likud-flokknum, til að mynda þjóðstjórn með Verkamannaflokknum. Strax í morgun bauð Sharon Simoni Peres, leiðtoga Verkamannaflokksins, til viðræðna um myndun nýrrar stjórnar. Peres segist vongóður um að þetta sé stórt skref í átt að friðarviðræðum fyrir botni Miðjarðarhafs, en það verði þó alls ekki auðvelt að ná því fram. Viðræður um myndun nýrrar stjórnar munu væntanlega hefjast um helgina, en áætlanirnar fela í sér að í staðinn fyrir brottflutning gyðinga frá Gazasvæðinu verði innlimað í Ísraelsríki landtökusvæði á vesturbakka Jórdanár. Palestínumenn eru vongóðir um að þessar breytingar á stjórninni í Ísrael verði þess valdandi að friðarferlið hefjist fyrir alvöru á nýjan leik.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×