Nýtt friðarsamkomulag á N-Írlandi 9. desember 2004 00:01
Endanlegt friðarsamkomulag á Norður-Írlandi liggur fyrir en ljósmyndir koma í veg fyrir að það sé undirritað. Talsmenn Írska lýðveldishersins segja ekki koma til greina að ljósmyndir verði teknar af því þegar vopn lýðveldishersins verða eyðilögð, og það geta mótmælendur ekki sætt sig við. Breskir fjölmiðlar segja friðarsamkomulagið sem Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, og Bertie Ahern, forsætisráðherra Írlands, kynntu í gær vera til marks um hversu lítið ber í raun í milli deilenda. Nánast öll deilumál hafi verið leyst, málum hafi verið miðlað og fátt standi í vegi fyrir því að heimastjórn verði á ný komið á. En það er óvíst hverju þetta skiptir því enn er eftir eitt mál óleyst og það kemur í veg fyrir að samkomulagið gangi í gildi. Forsvarsmenn Írska lýðveldishersins, IRA, neita að fallast á eitt lykilskilyrðið en samkvæmt því á herinn að leggja niður vopn og senda inn myndir af þeim vopnum sem eru eyðilögð. Leiðtogar lýðveldishersins vilja alls ekki gangast inn á þetta og segja það niðurlægjandi fyrir herinn að taka slíkar myndir. Mótmælendur, einkum flokkur öfgaklerksins Iands Paisleys, þvertaka fyrir að nóg sé að vitni séu að því þegar vopnin eru eyðilögð og krefjast ljósmynda. Utanríkisráðherra Írlands sagði í viðtali við breska ríkisútvarpið að hugsanlega óttuðust forystumenn lýðveldishersins að Paisley notaði myndirnar til að reyna að sýna fram á að hann hefði borið sigurorð af hernum. Þrátt fyrir þessi vandræði segja bæði Blair og Ahern deginum ljósara að samkomulagi gangi að lokum í gildi, því engin önnur leið sé fær.
Erlent Fréttir Mest lesið Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Erlent Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Innlent Slysið austan við Vík var alvarlegt Innlent Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Innlent HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Innlent „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Innlent Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Innlent Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Innlent Fleiri fréttir Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Samkomulag um samkomulag undirritað og klárt Erfiðir tímar fyrir norsku konungsfjölskylduna Sonur krónprinsessunnar áfrýjar dómi Sjá meira