Óvissa um orsök sprengingarinnar 8. desember 2004 00:01
Algjör óvissa er um hvað olli kröftugri sprengingu í fjölbýlishúsi í Stokkhólmi í nótt. Lögregla segir að maðurinn sem bjó í íbúðinni þar sem sprengingin varð sé grunaður um að hafa stolið bókum fyrir margar milljónir króna af konunglega bókasafninu í Stokkhólmi. Það var klukkan hálffimm í morgun sem öflug sprenging skók fjölbýlishús við Súrbrunnsgötu í miðborg Stokkhólms. Sprengingin varð í íbúð á fimmtu hæð hússins. Íbúðin sprakk, útveggir hrundu og svo virðist sem risíbúðin fyrir ofan hafi sprungið í tætlur. Lýsingar nágranna eru dramatískar og segir einn þeirra að fyrst hafi hvellurinn heyrst og svo hafi skarkallinn komið frá glerbrotum og öðru slíku. Annar nágranni segist hafa vaknað við sprenginguna, hús hans hafi nötrað og þegar hann hafi litið út um gluggann sá hann götuna þakta múrbrotum og tígulsteinum. Bílar voru kramdir og gluggar í húsum hinum megin við götuna brotnir. Það þykir ótrúleg heppni að aðeins skyldu tveir slasast. Lögreglan hefur ekki enn getað skorið úr um orsök sprengingarinnar en kringumstæður virðast í meira lagi dularfullar. Eins manns er saknað, þess sem bjó í íbúðinni sem sprengingin varð í. Í upphafi grunaði lögregluna hryðjuverk eða gassprengingu. Nú liggur fyrir að maðurinn sem saknað er starfaði hjá konunglega sænska bókasafninu í Stokkhólmi og var grunaður um að hafa stolið þaðan fjölda sjaldgæfra miðaldarita að verðmæti margra milljóna sænskra króna. Honum var sleppt úr gæsluvarðhaldi á föstudaginn var og lögreglan útilokar ekki að semhengi sé á milli atburðarins og rannsóknarinnar á bókastuldinum, sem má líkja við að starfsmaður léti greipar sópa á Árnastofnun.
Erlent Fréttir Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Máttu tæma lónið Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Fleiri fréttir Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Sjá meira