Sprenging í íbúð í Stokkhólmi 8. desember 2004 00:01
Lögreglu í Stokkhólmi grunar að sprengja hafi sprungið í fjölbýlishúsi í miðborg Stokkhólms í morgun. Svo virðist sem sprengingin hafi orðið á fimmtu hæð og við það hafi risíbúðin fyrir ofan sprungið í tætlur. Sænskir fjölmiðlar lýsa því þannig að húsið hafi rifnað, efsta íbúðin hrunið og nærliggjandi íbúðir stórskemmst. Steypu, grjóti og rúðugleri rigndi yfir bíla sem lagt var við götuna og er augljóst að verr hefði farið ef sprengingin hefði orðið eftir að fólk var komið á stjá. Eins manns er saknað, þess er bjó í risíbúðinni, en aðeins tveir slösuðust og báðir minniháttar. Lögreglan telur sig hafa útilokað að um gassprengingu hafi verið að ræða og leitar nú í húsinu með sprengjuleitarhundum. Hætta er á frekara hruni og hafa allar íbúðir í húsinu verið rýmdar. Allt tiltækt lögreglu- og sjúkralið var kallað á staðinn sem og strætisvagnar til að flytja fólk í nærliggjandi húsum á brott. Umferð um næsta nágrenni hefur verið stöðvuð og getur lögreglan ekkert sagt til um það á þessari stundu hvenær verður óhætt að snúa aftur á staðinn.
Erlent Fréttir Mest lesið Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Innlent „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Innlent Undarlegt mál á Þingvöllum og þýsk öfgaöfl Innlent Slysið austan við Vík var alvarlegt Innlent Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Innlent Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Erlent Fleiri fréttir Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Samkomulag um samkomulag undirritað og klárt Sjá meira