Nýr kafli í sögu Afganistans 7. desember 2004 00:01 "
Erfið og myrk fortíð er nú að baki og í dag hefjum við nýjan kafla í sögu okkar, í anda vinskapar við alþjóðasamfélagið," sagði Hamid Karzai, þegar hann hafði svarið embættiseið sem fyrsti lýðræðislega kjörni forseti Afganistans. Karzai hét því að koma á friði og öryggi, meðal annars með því að ráðast gegn fíkniefnaiðnaðinum og hryðjuverkamönnum sem ógna Afganistan. Gríðarleg öryggisgæsla var í Kabúl meðan á athöfninni stóð. Talibanar höfðu hótað því að láta til skarar skríða en rétt eins og í forsetakosningunum í október varð lítið úr því að þeir fylgdu hótunum sínum eftir. Fjöldi afganskra frammámanna og fulltrúa erlendra ríkja var viðstaddur embættistöku Karzai sem fram fór í víggirtri forsetahöllinni. Karzai sór embættiseið frammi fyrir forseta hæstaréttar Afganistans og sór síðan sjálfur inn varaforseta sína, Ahmed Zia Masood og Ustad Mohammed Karim Khalili. Í ræðu sem Karzai hélt eftir að hafa svarið embættiseið hét hann því að gera allt sem í hans valdi og embættis síns stæði til að vinna að framgangi og velferð afgönsku þjóðarinnar. Hann varaði þó við því að enn steðjuðu ógnir að afgönsku þjóðinni. "Ég verð að taka fram að baráttu okkar við hryðjuverk er hvergi nærri lokið, jafnvel þó okkur hafi tekist að draga úr þessari sameiginlegu ógn við allt mannkyn." Hryðjuverkaógnin var Dick Cheney, varaforseta Bandaríkjanna, einnig ofarlega í huga þegar hann ávarpaði bandaríska hermenn í Afganistan áður en hann hélt til embættistöku Karzai. "Frelsið á sér enn óvini hér í Afganistan og verkefni ykkar er að gera þessum óvinum lífið leitt," sagði hann við mikinn fögnuð hermanna. Karzai kynnir ríkisstjórn sína í næstu viku. Fyrir henni liggur að koma á miðstjórn sem nær til alls landsins, í dag er stórum landsvæðum stjórnað af stríðsherrum sem hafa miklar tekjur af eiturlyfjaframleiðslu.
Erlent Fréttir Mest lesið Vaktin: Íbúum verulega brugðið og óttast framtíðina í sveitinni Innlent „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Innlent Slapp vel þegar bíll hennar valt yfir 200 metra niður Bolafjall Innlent Eldur logaði í Stykkishólmi Innlent Gríðarlegur fjöldi minka slapp úr búrum sínum Innlent Horfðu á bílinn velta hring eftir hring niður fjallið Innlent Líkir Tryggingastofnun við handrukkara Innlent „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Innlent „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Erlent Talið að fleiri þúsund minkar gangi lausir Innlent Fleiri fréttir Neitaði að svara spurningum þingmanna Leita enn í rústunum í Japan „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Stofnandi Telegram ákærður og eftirlýstur í Rússlandi Tuttugu drengir á Gothia Cup týndir Ebólan komin í metstærð á mettíma Nýr forseti hét því að beita hernum gegn glæpum Þrettán látnir hið minnsta í Japan Írönum hótað hefndum eftir árás á herstöð Bandaríkjanna Ræddu Patriot-flaugar og friðarviðræður Vill að RFK gangi harðar fram gegn bólusetningum Fólk fast í verslunarmiðstöð eftir skjálftann í Japan „Við munum ná markmiðum okkar“ Vilja að Hæstiréttur taki afstöðu Stukku fram af Geimnálinni Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Bandarískir hermenn ekki látnir svara til saka á Bretlandseyjum Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Árásirnar haldi áfram skili viðræðurnar ekki sínu Önnur hitabylgja nálgast Spán Kveiktu í tveimur moskum Handtekinn við Kastrup eftir að tilkynnt var um meinta skammbyssu Fölsk játning í formi lags Drífa segir nálgunarbann vannýtt úrræði Skutu niður meinta rússneska dróna í lofthelgi ESB í þriðja sinn Engar íranskar árásir gerðar á meðan sprengjuhlé Bandaríkjanna varir Þrír látnir eftir skothríð á matarhátíð í Seattle Netayahu sakar Mamdani um að „sá hatri“ Á fjórða hundrað þúsund hafa flúið heimili sín vegna gróðurelda Sjá meira