Blair styður Annan 7. desember 2004 00:01
Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, hefur lýst stuðningi við Kofi Annan, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna. Bandarísk þingnefnd hefur gagnrýnt Annan harðlega og krafist þess að hann segi af sér. Bandaríska þingnefndin er að rannsaka „olíu fyrir mat hneykslið“ svokallaða í Írak. Samkvæmt sérstakri samþykkt Sameinuðu þjóðanna var Írökum heimilt að selja visst magn af olíu til þess að fjármagna kaup á mat, lyfjum og öðrum nauðsynjum. Síðan Saddam Hussein var steypt af stóli, og gögn um málið í Írak komu upp á yfirborðið, hafa komið fram ásakanir um stórfellda spillingu og brot á reglum þeim sem Sameinuðu þjóðirnar settu um viðskiptin. Því er meðal annars haldið fram að með mútum hafi Saddam getað dregið sér yfir tíu milljarða króna af peningunum sem fengust fyrir olíuna. Bandaríska þingnefndin, sem er að rannsaka málið, hefur gagnrýnt Kofi Annan harkalega og krafist þess að hann segi af sér. George Bush, forseti Bandaríkjanna, hefur vikið sér undan því að svara því beint hvort hann vilji að framkvæmdastjórinn víki. Hann hefur aðeins sagt að hann vilji að málið verði rannsakað niður í kjölinn. Rússar, Frakkar, Kínverjar og Þjóðverjar hafa lýst yfir stuðningi við Annan, og það hefur Tony Blair nú einnig gert. Á blaðamannafundi í Downing-stræti 10 sagði breski forsætisráðherrann að það væri hans skoðun að framkvæmdastjórinn sinnti starfi sínu vel við erfiðar aðstæður. „Ég hef oft haft ástæðu til þess að vera þakklátur Kofi Annan fyrir forystu hans og ég vona að hann fái að starfa í friði,“ sagði Blair og bætti því við að sér fyndist gagnrýni á Annan óréttmæt.
Erlent Fréttir Mest lesið Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Kim fjölgar herskipum sínum Erlent Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Erlent „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Innlent Kílómetragjaldið hækkar Innlent Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi Innlent „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Innlent Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Innlent Fleiri fréttir Kim fjölgar herskipum sínum Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Klerkastjórnin missir tökin Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Gengið til tímamótakosninga í Þýskalandi Funda um framgang stríðsins: „Þeir eru á ómögulega slæmum stað“ Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Fjarhægrimenn gætu fundið bragðið af völdum í fyrsta sinn Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Ítrekar kröfu á Falklandseyjar: Ekki duttlungar heldur „lífsnauðsyn“ Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Árás á höfuðstöðvar Öryggisstofnunar Úkraínu Kviðdómendur fá enn eitt tækifæri Sjá meira