Pyntingar staðreynd við Guantanamo 30. nóvember 2004 00:01
Pyntingar á föngum viðgangast í fangelsi Bandaríkjastjórnar við Guantanamo-flóa og aðstæður þar eru hryllilegar segir rannsóknarblaðamaðurinn David Rose sem skrifað hefur bók um málið. Alþjóða Rauði krossinn tekur undir ásakanir hans í trúnaðarskýrslu til Bandaríkjastjórnar. Í bandarísku herstöðinni við Guantanamo hafa um 500 fangar setið í haldi án dóms og laga í tæp þrjú ár. Ýmist voru þeir handteknir í Afganistan eftir 11. september eða síðar grunaðir um tengsl við al-Kaída. Alþjóða Rauði krossinn heldur því fram í trúnaðarskýrslu til Bandaríkjastjórnar að fangarnir séu pyntaðir. Fjallað er um skýrsluna í New York Times í dag. Blaðamaðurinn David Rose heimsótti fangabúðirnar á síðasta ári og ræddi við fangaverði og aðra starfsmenn. Hann tók viðtöl við fyrrverandi fanga og fólk í bandaríska stjórnkerfinu. Afraksturinn er bókin Guantanamo. Rose segir fangana pyntaða við yfirheyrslur, þeim sé t.d. haldið á köldum stöðum, bundnir í mjög óþægilegum stellingum, neyddir til að hægja sér í eigin föt og meinað að sofa. Svona gangi þetta mánuðum saman. „Það mikilvægasta í sambandi við Guantanamo er að þetta er ekki aðeins siðlaust og ólöglegt samkvæmt bandarískum og alþjóðlegum lögum heldur virkar þetta ekki. Engar nothæfar upplýsingar hafa komið fram því það eru rangir menn þarna,“ segir Rose og hefur það m.a. eftir háttsettum bandarískum njósnaforingjum. Höfundurinn segir flesta fanganna hafa verið selda til Bandaríkjamanna af mannaveiðurum en ekki handteknir á vígvellinum eins og Bandaríkjamenn haldi fram. Hann segir mannaveiðaranna fá um fimm þúsund dali fyrir hvern fanga. Yfirheyrslurnar skili hins vegar engum árangri því fæstir mannanna viti nokkuð um hryðjuverkastarfsemi. Spurður hvers vegna hann telji að svona sé komið segist Rose halda að Guantanamo sé tilraun sem Bandaríkjamenn geri til að sjá hvað þeir komist upp með, hve mikil lögbrot þeir geti framið án þess að bandaríska og alþjóðlega samfélagið bregðist við, auk þess sem þetta sé afleiðing undarlegrar, kristilegrar valdboðshneigðar í Bandaríkjunum.
Erlent Fréttir Mest lesið Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Innlent „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Innlent Undarlegt mál á Þingvöllum og þýsk öfgaöfl Innlent Slysið austan við Vík var alvarlegt Innlent Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Innlent Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Erlent Fleiri fréttir Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Samkomulag um samkomulag undirritað og klárt Sjá meira