Kosningarnar fyrir Hæstarétti 29. nóvember 2004 00:01
Hæstiréttur Úkraínu hóf í morgun að fjalla um forsetakosningarnar umdeildu sem fram fóru í landinu fyrir rúmri viku en hann á að úrskurða hvort þær skuli ógildar. Þúsundir stuðningsmanna beggja fylkinga standa með hrópum og köllum við réttinn. Ólga vex enn í landinu með hótunum um aðskilnað og sjálfsstjórn í austurhluta landsins. Spennan er slík í landinu að óttast er að upp úr sjóði. Stjórnarandstaðan vill láta ógilda kosningarnar vegna kosningasvika og boða til nýrra þann 12. desember. Myndband sem sýnt var í fjölmiðlum í dag sýnir eyðileggingu á kjörgögnum og kjósendur, sem ekið er um í bíl merktum stjórnvöldum á milli margra kjörstaða, og kjósendum eru réttir fleiri en einn kjörseðill. Stuðningsmenn Janúkovítsj, sem yfirkjörstjórn hefur lýst sigurvegara, hóta hins vegar að krefjast sjálfstjórnar í austurhluta landsins ef Júsjenko, keppinautur hans og stjórnarandstæðingur, verður lýstur sigurvegari en hann nýtur stuðnings Vesturlanda. Í gær samþykktu fulltrúar í meirihluta héraða bæði í suðurhlutanum og austurhlutanum að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfsstjórn. Dómara Hæstaréttar Úkraínu bíður nú erfitt verk undir gríðarlegum pólitískum þrýstingi. Að sögn bandarískra stjórnmálaskýrenda hafa úrskurðir dómstólsins þó oft verið á öndverðum meiði við skoðanir stjórnvalda. Stuðningsmenn stjórnarandstæðingsins Júsjenko héldu áfram kröftugum mótmælum í morgun og standa nú þúsundum saman fyrir utan Hæstarétt. Þar eru einnig saman komnir stuðningsmenn Janúkovítsj. Báðir hópar hrópa nöfn sinna manna og veifa flöggum. Það gæti tekið Hæstarétt nokkra daga að komast að niðurstöðu um málið. Á meðan hafa leiðtogar fjölda landa lýst yfir áhyggjum sínum af ólgunni í landinu. Yfirmaður utanríkismála Evrópusambandsins, Javier Solana, sem hefur reynt að miðla málum, sagði í morgun að það væri grundvallaratriði að halda landinu saman og hótanir um sjálfsstjórn væru ekki vel séðar.
Erlent Fréttir Mest lesið Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Innlent Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Innlent „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Innlent Undarlegt mál á Þingvöllum og þýsk öfgaöfl Innlent Hafi ræst úr málum eftir martraðir um 1994 Innlent Slysið austan við Vík var alvarlegt Innlent Fleiri fréttir Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Sjá meira