Janukovitsj verði rekinn úr starfi 28. nóvember 2004 00:01
Stjórnarandstaðan í Úkraínu hefur stillt Leonid Kútsjma, fráfarandi forseta Úkraínu, upp við vegg. Júlía Tímósjenko, aðstoðarkona Viktors Júsjenko, sagði í gærkvöld að Kútsjma hefði tíma þar til í kvöld til að uppfylla kröfur stjórnarandstöðunnar. Mikil ólga hefur ríkt í landinu síðan Viktor Janukovitsj, forsætisráðherra landsins, var lýstur sigurvegari forsetakosninganna 21. nóvember. Talið er fullvíst að Janukovitsj hafi svindlað í kosningunum og hefur Júsjenko sem og Evrópusambandið farið fram á að kosningarnar verði endurteknar. Spennan í landinu hefur stigmagnast undanfarna viku og nú krefst stjórnarandstaðan þess að Kútsjma reki Janukovitsj úr starfi. Kútsjma er yfirlýstur stuðningsmaður Janukovitsj. Stjórnarandstaðan krefst þess líka að ríkisstjórar í nokkrum héruðum í austurhluta landsins, sem hótuðu aðskilnaði frá vesturhlutanum, verði reknir. Einnig er þess krafist að stokkað verði upp í yfirkjörstjórn landsins en þingið samþykkti í gær vantraust á yfirkjörstjórnina. Um hundrað þúsund manns mótmæltu á götum Kænugarðs, höfuðborgar Úkraínu, í gær. Langflestir þeirra eru stuðningsmenn Júsjenko. Tímósjenko ávarpaði fjöldann í gær og sagði að ef Kútsjma yrði ekki við kröfum stjórnarandstöðunnar myndi hann verða sóttur til saka fyrir glæpi gegn eigin þjóð. Í kjölfarið hrópaði mannfjöldinn slagorð: "Niður með Kútsjma". Fulltrúar Júsjenko og Janukovitsj hafa fundað undanfarna daga um lausn deilunnar en lítið hefur þokað. Fulltrúar Janukovitsj hafa meðal annars farið fram á að Júsjenko beiti sér fyrir því að stöðva mótmælin á götum borgarinnar en Júsjenko hefur þvertekið fyrir það. Hæstiréttur Úkraínu fjallar í dag um áfrýjun Júsjenko vegna kosningaúrslitanna. Fulltrúar Janukovitsj hafa gefið í skyn að rétturinn hafi ekki heimild til að ógilda kosingarnar en Júsjenko vísar því á bug.
Erlent Fréttir Mest lesið Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Innlent „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Innlent Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Innlent Undarlegt mál á Þingvöllum og þýsk öfgaöfl Innlent Slysið austan við Vík var alvarlegt Innlent Hafi ræst úr málum eftir martraðir um 1994 Innlent Fleiri fréttir Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Sjá meira