Boðað verði til nýrra kosninga 28. nóvember 2004 00:01
Evrópusambandið segir að boða verði til nýrra forsetakosningu í Úkraínu til að koma í veg fyrir borgarastyrjöld. Hæstiréttur landsins úrskurðar um lögmæti kosninganna á morgun. Þjóðþing Úkraínu ógilti í gær úrslit forsetakosninganna, en samkvæmt þeim sigraði Viktor Janúkóvits, forsætisráðherra. Viktor Júsjenkó, leiðtogi stjórnarandstöðunnar, hefur sakað stjórnvöld um kosningasvik og kært úrslitin til hæstaréttar landsins, og tekur rétturinn afstöðu til kærunnar á morgun. Ákvörðun þingsins er ekki bindandi, en getur haft verulega áhrif. Bernhard Bot, utanríkisráðherra Hollands, sem er í forsæti ESB, segir brýnt að halda nýjar forsetakosningar á þessu ári. Joska Fischer, utanríkisráðherra Þýskalands, tekur í sama streng og segir það best fyrir lýðræðið í Úkraínu. Janúkóvits, forsætisráðherra, hélt frá Kænugarði í morgun til austurhluta landsins, þar sem hann nýtur mikils stuðnings, en hann hefur mætt mikilli andstöðu almennings í höfuðborginni. Leonid Kútsma, fráfarandi forseti Úkraínu, fundaði í morgun með þjóðaröryggisráði landsins, en mikil ólga hefur verið í landinu frá því forsetakosningarnar voru haldnar síðasta sunnudag. Haft var eftir honum fyrir stundu að illa gengi að ræða við bæði Janúkóvits og Júsjenkó um lausn málsins. Tug þúsundir stuðningsmanna Júsjenkós héldu áfram mótmælum í höfuðborginni í morgun og fögnuðu þeirri niðurstöðu þingsins að ógilda kosningaúrslitin. Þingið lagði ekki til hvenær skyldi kosið að nýju, en Júsjenskó hefur nefnt dagsetninguna 12. desember. Janúkóvits, sem stjórnvöld í Rússlandi styðja, hefur ekki lýst því yfir hvort hann vilji að þjóðin endurtaki kosningarnar.
Erlent Fréttir Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Máttu tæma lónið Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Fleiri fréttir Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Sjá meira