Nærri orðið stórslys 26. nóvember 2004 00:01
Litlu munaði að stórslys yrði á Gardermoen-flugvelli í Osló á mánudaginn, þegar aðeins munaði nokkrum sekúndum að tvær farþegaþotur SAS-flugfélagsins rækjust saman. Talið er að snarræði flugmanna hafi komið í veg fyrir slysið. Rannsóknarnefnd flugslysa í Noregi rannsakar nú þetta alvarlega flugatvik, sem varð á Gardermoen flugvelli síðastliðinn mánudagsmorgun, en vélarnar höfðu fengið heimild frá flugumferðarstjóra um að nota sömu flugbraut á sama tíma. Á fjórða hundrað farþegar voru um borð í vélunum, en önnur þeirra var að koma inn til lendingar frá Bjögvin og hin um það bil að taka á loft til Kaupmannahafnar. Mikil snjókoma var á flugvellinum þegar atvikið varð og skyggni slæmt, og er talið að vélarnar hafi verið aðeins nokkrum sekúndum frá stórslysi. Flugstjórar Kaupmannahafnar-vélarinnar, sem voru á leið inn á flugbrautina til að taka á loft, gerðu sér grein fyrir því í hvað stefndi, og náðu að stöðva vélina áður en hún kom inn brautina, sem Bergen-vélin var að fara að lenda á. Samkvæmt norska dagblaðinu, Verdens Gang, hefur flugumferðarstjóranum, sem veitti vélunum heimild, verið vikið tímabundið úr starfi. Atvikið þykir minna á það atvik, sem leiddi til flugslyssins á Linate-flugvellinum í Mílanó á Ítalíu í október árið 2001, þegar SAS farþegaþota og lítil Cessna-Citation rákust saman, með þeim afleiðingum að 118 manns fóust.
Erlent Fréttir Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Máttu tæma lónið Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Fleiri fréttir Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Sjá meira