Erlent

Maóistum kennt um hryðjuverk

Öflug sprengja sprakk í gærmorgun í opinberri byggingu sem verið er að byggja í miðborg Katmandú í Nepal. Alls slösuðust 36 manns. Lögreglan telur að maóistar hafi komið bakpoka með sprengiefni fyrir í byggingunni. Hryðjuverk maóista, sem hafa barist fyrir því síðan árið 1996 að kommúnismi verði tekinn upp í Nepal, hafa kostað um tíu þúsund manns lífið í Nepal. Lögregluyfirvöld telja sig vita hverjir ódæðismennirnir voru og vonast til að handtaka þá fljótlega. Vopnahlé ríkti milli uppreisnarmanna og stjórnvalda í Nepal vegna trúarhátíðar hindúa í lok október. Síðan því lauk 28. október hafa 30 manns látist í átökum uppreisnarmanna og stjórnvalda. Sprengingin sem varð í gær heyrðist í allt að tveggja kílómetra fjarlægð frá byggingunni. Byggingin skemmdist nokkuð og rúður brotnuðu í nálægum húsum. Verkamenn sem voru að vinna í húsinu slösuðust, sem og nokkrir vegfarendur sem áttu leið fram hjá því.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×