Uppreisnarmenn afvopnast 11. október 2004 00:01
Uppreisnarmenn sjía-klerksins Muqtada al-Sadr byrjuðu í gær að láta af hendi vopn samkvæmt samningi sem þeir gerðu við írösk stjórnvöld á sunnudaginn. Búist er við því að uppreisnarmennirnir í Sadr-borg, í norðurhluta Bagdad, muni á næstu fimm dögum láta af hendi fjölda vopna og er vonast til þess að það bindi enda á sex mánaða óöld á svæðinu. Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, sem kom í óvænta heimsókn til Íraks, segir að samkvæmt samkomulaginu muni írösk stjórnvöld láta lausa úr fangelsi liðsmenn sjía-klerksins. Í staðinn láti uppreisnarmennirnir af hendi vopn og fá greiðslu fyrir þau. Þá felist einnig í samkomulaginu að stjórnvöld veiti um 30 milljörðum króna til uppbyggingar í Sadr-borg. Tekið er á móti vopnum við þrjár lögreglustöðvar og hefur þegar nokkur fjöldi vopna verið afhentur yfirvöldum, m.a. tugir sprengjuvarpna, sprengiefni og hríðskotabyssur. Fréttamaður AP varð vitni að því þegar tvítugur maður kom með tvær sprengjuvörpur á eina lögreglustöðina. "Guð hjálpi okkur að hér verði ekki barist meira og að friður verði í Sadr-borg," sagði maðurinn þegar hann afhenti vopin. Rumsfeld fundaði með Iyad Allawi, forsætisráðherra Íraks, um kosningarnar í janúar. Hann segir að þrátt fyrir samkomulagið við liðsmenn al-Sadr megi búast við því að ófriður muni aukast víða um landið allt þar til kosningar verða haldnar. Mikilvægt sé hins vegar að allar tímaáætlanir standist og kosningarnar verði haldnar. Verið er að undirbúa viðræður við uppreisnarmenn í Falluja sem búist er við að verði á sömu nótum og viðræðurnar við al-Sadr. Hazem Shaalan, varnarmálaráðherra Íraks, mun funda með forsvarsmönnum uppreisnarmanna í borginni sem hefur verið blóðugur vígvöllur síðan vopnahléi var aflýst í apríl.
Erlent Fréttir Mest lesið Eldgos hafið Innlent Að ráðast, eða ráðast ekki, á Moskvu Erlent Leggur til að frídögum verði fækkað um tvo Erlent Fallegt og ekkert smágos Innlent Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Erlent Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Innlent Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Innlent Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni Innlent „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ Innlent Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Innlent Fleiri fréttir Að ráðast, eða ráðast ekki, á Moskvu Leggur til að frídögum verði fækkað um tvo Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Pútín lætur sér fátt um finnast Ekkja Navalní mótmælir tónleikum „náins vinar“ Pútín Leynd aflétt af leynilegri áætlun um móttöku Afgana Fyrirætlanir um búðir í Rafah vekja ágreining Rússar virðast hafa litlar áhyggjur af hótunum Trump Hótar Pútín með tollum ef friður næst ekki á fimmtíu dögum Uppgröftur að hefjast þar sem allt að 800 börn voru jarðsett Trump segir Pútín hafa komið sér á óvart „Tæknivilla“ hafi valdið árás á fólk sem var að sækja sér vatn Segjast hafa „útrýmt“ banamönnum ofurstans Gisèle Pelicot sæmd æðstu heiðursorðu Frakka Hvetja foreldra til að bólusetja börnin sín eftir andlát vegna mislinga Reyna aftur að sigla til Gasa Veita yfirráðasvæði Frakklands meira sjálfstæði Kim lofar Rússum „skilyrðislausum stuðningi“ Hótar að svipta Rosie O'Donnell ríkisborgararétti Fjórir látnir eftir gríðarstóra loftárás Slökkt á eldsneytisflæði rétt eftir flugtak og ruglingur milli flugmanna Indversk tenniskona skotin til bana af föður sínum við morgunverðarborðið Frakkar og Bretar ná saman um að skiptast á hælisleitendum Þriðjungur endurreisnarinnar gæti fallið á Rússa Liðsmenn Verkalýðsflokks Kúrda leggja niður vopn Fyrsta rafknúna flugvélin í dönsku innanlandsflugi Sex vikið úr starfi vegna banatilræðis gegn Trump Fannst lifandi inni í kistu tveimur dögum eftir að leit hófst Stúlkur látnar afklæðast til að athuga með blæðingar Kvarta yfir því að reykur frá Kanada sé að skemma sumarið Sjá meira